| Sf. Gutt

Af kvennaliðinu


Kvennalið Liverpool er mætt til æfinga fyrir komandi keppnistímabil. Liverpool féll í fyrra og spilaði í næst efstu deild á síðustu leiktíð. 



Nýr þjálfari hefur verið ráðinn til að koma Liverpool upp í efstu deild að nýju. Um er að ræða Matt Beard. Hann er að góðu kunnur í herbúðum Liverpool. Matt stýrði Liverpool áður frá 2012 til 2015. Hann gerði Liverpool að Englandsmeisturum tvö ár í röð 2013 og 2014. Matt er lengst til hægri á myndinni. Katrín Ómarsdóttir spilaði með Liverpool á þessum árum.

Matt yfirgaf Liverpool haustið 2015 og hefur þjálfað í Bandaríkjunum og á Englandi síðan. En nú er hann aftur kominn til Liverpool og vonandi kemur hann liðinu upp í efstu deild sem allra fyrst. 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan