| Sf. Gutt
Thiago Alcântara segir að það hafi verið auðveld ákvörðun að fara til Liverpool. Hann hafi einfaldlega ekki viljað missa af því tækifæri að spila í ensku knattspyrnunni. Hann átti þess kost að fara aftur heim til Spánar en þegar Liverpool hafði samband var teningunum kastað.
,,Ég átti möguleika á því að snúa til baka en ég það var alveg á hreinu að mig langaði að upplifa að spila í Úrvalsdeildinni því það er mjög erfið deild. Ákvörðunin var auðveld eftir að þjálfarinn og félagið settu sig í samband við mig."
Thiago hefur átt erfitt uppdráttar það sem af er í ensku knattspyrnunni. Slæm meiðsli og veikindi hafa ekki hjálpað til en þar fyrir utan virðist sem að hann hafi ekki náð taktinum í þessari erfiðu deild.
Það er þó ekki nokkur vafi á hæfileikum Thiago. Hann vann átta titla með Barcelona og 16 með Bayern Munchen. Sumir telja þó að Liverpool hafi gert mistök með því að fá Spánverjann til sín. Tíminn leiðir það í ljós.
TIL BAKA
Auðveld ákvörðun

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur -
| Sf. Gutt
Hvað gerist næst? -
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum
Fréttageymslan