| Sf. Gutt
Ovie Ejaria hefur gert nýjan samning við Liverpool. Ekki kemur fram hvað samningurinn er langur.
Ovie verður þó ekki hjá Liverpool á næstu leíktíð því hann hefur verið lánaður til Glasgow Rangers. Steven Gerrard þekkir vel til piltsins og hefur greinilega álit á honum.
Ovie sagði það hafa verið auðvelda ákvörðun að gera nýjan samning við Liverpool. ,,Ég er núna búinn að vera hjá Liverpool í fjögur ár og það gleður mig mjög mikið að framlengja dvöl mína hérna. Þetta er risafélag, því gengur mjög vel núna og þess vegna var ákvörðunin auðveld."
Ovie, sem getur leikið flestar stöður fremst á vellinum, kom til Liverpool frá Akadeníu Arsenal árið 2014. Hann lék sem lánsmaður hjá Sunderland á síðasta keppnistímabili. Hann hefur leikið átta leiki með aðalliði Liverpool. Ovie hefur spilað með yngri landsliðum Englands og nú síðast undir 21. árs liðinu.
TIL BAKA
Ovie Ejaria gerir samning og fer í lán
Ovie Ejaria hefur gert nýjan samning við Liverpool. Ekki kemur fram hvað samningurinn er langur. Ovie verður þó ekki hjá Liverpool á næstu leíktíð því hann hefur verið lánaður til Glasgow Rangers. Steven Gerrard þekkir vel til piltsins og hefur greinilega álit á honum.
Ovie sagði það hafa verið auðvelda ákvörðun að gera nýjan samning við Liverpool. ,,Ég er núna búinn að vera hjá Liverpool í fjögur ár og það gleður mig mjög mikið að framlengja dvöl mína hérna. Þetta er risafélag, því gengur mjög vel núna og þess vegna var ákvörðunin auðveld."
Ovie, sem getur leikið flestar stöður fremst á vellinum, kom til Liverpool frá Akadeníu Arsenal árið 2014. Hann lék sem lánsmaður hjá Sunderland á síðasta keppnistímabili. Hann hefur leikið átta leiki með aðalliði Liverpool. Ovie hefur spilað með yngri landsliðum Englands og nú síðast undir 21. árs liðinu.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Dominik í leikbann -
| Sf. Gutt
Ekki í mínum höndum! -
| Sf. Gutt
Jeremie enn meiddur -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Jeremy Jacquet kemur til Liverpool! -
| Sf. Gutt
Hvað gerist? - Uppfært í dag og fram á kvöld! -
| Sf. Gutt
Ibrahima kominn heim! -
| Sf. Gutt
Fjögur lið í boði! -
| Sf. Gutt
Stórsigur og öruggt áframhald! -
| Sf. Gutt
Einn miðvörður til taks!
Fréttageymslan

