| Grétar Magnússon
Um mánaðamótin október og nóvember kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum og Liverpool-klúbbnum á Íslandi bókin STEVEN GERRARD. Höfundur hennar er Sigfús Guttormsson, Liverpool-aðdáandi frá blautu barnsbeini og höfundur margra greina í Rauða hernum, tímariti klúbbsins, og á vefsíðunni www.liverpool.is. Í bókinni mun hann rekja feril þessa frábæra knattspyrnumanns frá því hann hóf barnungur að æfa með Liverpool. Greint verður frá bæði sigrum og sorgum hans. Margt fróðlegt og skemmtilegt verður dregið fram í dagsljósið sem tengist þessari goðsögn hjá Liverpool og félaginu sjálfu.
Aftast í bókinni verður ,,Þakkarlisti" þar sem Gerrard verður þakkað fyrir framlag sitt til félagsins af hálfu stuðningsmanna Liverpool á Íslandi. Þar verða nöfn áskrifenda bókarinnar birt, en Gerrard mun fá eintak af henni afhent við fyrsta tækifæri. Það er okkur mjög í mun að listinn verði sem lengstur og glæsilegastur. Áskriftarverð bókarinnar verður kr. 5.980 og greiðist fyrirfram.
Þeir sem vilja gerast áskrifendur að bókinni STEVEN GERRARD og fá um leið nafn sitt á ,,Þakkarlistann" hafi samband sem fyrst í netfangið:
[email protected]
Nauðsynlegar upplýsingar verða að koma fram í póstinum, s.s. nafnið (hjón, feðgar, mæðgin, mæðgur geta skráð sig saman) sem á að skrá, heimilisfang viðkomandi og kennitala. Þá fær viðkomandi sent til baka reikningsnúmer til að leggja inn á verð bókarinnar. Eins má hafa samband í síma 692-8508 (eftir klukkan 16 á daginn) og skrá sig þar. Þeir sem vilja greiða fyrir bókina með greiðslukorti láti auk þess fylgja með kortanúmerið (16 stafir) og gildistímann (4 stafir).
Koma svo!
TIL BAKA
Bók um feril Steven Gerrard

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Sterkur sigur! -
| Sf. Gutt
Thiago ennþá meiddur -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp setur nýtt félagsmet! -
| Sf. Gutt
Evrópuvegferð Liverpool byrjaði vel! -
| Sf. Gutt
Gerum allt sem við getum til að vinna! -
| Sf. Gutt
Ben Doak kominn með nýjan samning -
| Sf. Gutt
Við verðum að stefna mjög hátt! -
| Sf. Gutt
Alltaf gaman að skora -
| Sf. Gutt
Aftur endurkomusigur á útivelli! -
| Sf. Gutt
Jürgen Klopp kominn með 300 deildarleiki
Fréttageymslan