| Sf. Gutt
Robbie Fowler segist langa mikið til þess að þjálfa hjá Liverpool. Hann er núna að læra knattspyrnuþjálfun eftir að hafa hætt að spila knattspyrnu í Ástralíu. Robbie sagði frá áhuga sínum á þjálfarastarfi hjá Liverpool í viðtali við Al Jazeera Sport.
,,Ef satt skal segja þá myndi ég svo gjarnan vilja það en ég hef ekkert um það að segja! Ef ég gæti gengið inn þar á morgun þá myndi ég gera það en heimurinn er ekki fullkominn eins og allir vita."
,,Ég mun stefna á að komast þangað og starfa hjá félaginu á nýjan leik. Félagið hefur alltaf skipað stóran sess í lífi mínu frá því ég byrjaði þar þegar ég var ellefu ára gamall."
Robbie Fowler kom við á æfingum hjá varaliði Liverpool í vor og hver veit nema forráðamenn Liverpool hafi hug á því að fá hann til starfa á næstu árum. Víst er að Robbie er mjög áhugasamur.
TIL BAKA
Robbie langar að þjálfa hjá Liverpool

Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Baráttusigur! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Erfitt verkefni! -
| Sf. Gutt
Slæmt tap varð að sætum sigri á 81 sekúndu! -
| Sf. Gutt
Farseðill upp á lengri Evrópuvegferð tryggður! -
| Mummi
Miðasala á Liverpool – Manchester United og félagakerfi -
| Sf. Gutt
Aldarfjórðungur frá frumraun Steven Gerrard -
| Sf. Gutt
Tveir í viðbót á meiðslalistann -
| Sf. Gutt
Gemma Bonner setur leikjamet! -
| Sf. Gutt
Spiluðum alls ekki frábærlega
Fréttageymslan