| Sf. Gutt
Liverpool mætir Tottenham Hotspur í síðasta heimaleik sínum á leiktíðinni á sunnudaginn. Sigur tryggir Liverpool fimmta sætið í deildinni og þáttöku í Evrópukeppni. Jay Spearing vill að Liverpool klári málið með sigri. Hann gerir sér þó grein fyrir því að leikurinn verður erfiður.
,,Á góðum degi getur liðið leikið vel ef það vill svo við hafa. Þeir hafa marga sterka leikmenn og þess vegna verður leikurinn á Anfield erfiður. En við erum á heimavelli og ef við spilum eins og á móti Fulham munum við þjarma að þeim. Leikurinn á sunnudaginn verður stórleikur. Evrópudeildin er merkileg keppni og Liverpool þarf að reyna að vinna eins marga titla og mögulegt er."
Jay hefur spilað frábærlega síðustu vikurnar og hann ætlar ekkert að slá af á sunnudaginn enda vill hann ekki missa sæti sitt í liðinu.
,,Við erum allir að berjast fyrir okkar sætum í liðinu og allir vilja spila vel. Við sýndum gegn Fulham hvað í okkur býr og við viljum enda sem hæst."
Meistaradeildarsæti er úr sögunni en Liverpool hefur sæti í Evrópudeildinni í hendi sér. Liðið er tveimur stigum á undan Tottenham þegar tvær umferðir eru eftir.
TIL BAKA
Klárum málið!
Liverpool mætir Tottenham Hotspur í síðasta heimaleik sínum á leiktíðinni á sunnudaginn. Sigur tryggir Liverpool fimmta sætið í deildinni og þáttöku í Evrópukeppni. Jay Spearing vill að Liverpool klári málið með sigri. Hann gerir sér þó grein fyrir því að leikurinn verður erfiður. ,,Á góðum degi getur liðið leikið vel ef það vill svo við hafa. Þeir hafa marga sterka leikmenn og þess vegna verður leikurinn á Anfield erfiður. En við erum á heimavelli og ef við spilum eins og á móti Fulham munum við þjarma að þeim. Leikurinn á sunnudaginn verður stórleikur. Evrópudeildin er merkileg keppni og Liverpool þarf að reyna að vinna eins marga titla og mögulegt er."
Jay hefur spilað frábærlega síðustu vikurnar og hann ætlar ekkert að slá af á sunnudaginn enda vill hann ekki missa sæti sitt í liðinu.
,,Við erum allir að berjast fyrir okkar sætum í liðinu og allir vilja spila vel. Við sýndum gegn Fulham hvað í okkur býr og við viljum enda sem hæst."
Meistaradeildarsæti er úr sögunni en Liverpool hefur sæti í Evrópudeildinni í hendi sér. Liðið er tveimur stigum á undan Tottenham þegar tvær umferðir eru eftir.
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur -
| Sf. Gutt
Hvað gerist næst? -
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro! -
| Sf. Gutt
Dregið í FA bikarnum -
| Sf. Gutt
Mohamed skilinn eftir heima í Liverpool! -
| Sf. Gutt
Allt í uppnámi eftir hörð orð Mohamed Salah! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Í minningu
Fréttageymslan

