| Heimir Eyvindarson
TIL BAKA
Kelly er leikfær
Martin Kelly mun vera leikfær fyrir leikinn gegn Blackpool. Þar með leysast líklega vandræðin sem Roy Hodgson stóð frammi fyrir með vinstri bakverði.

Liverpool Echo segir frá því að Martin Kelly sé klár í slaginn fyrir Blackpool, en hann meiddist lítillega í 0-0 leiknum við Utrecht á fimmtudaginn. Talið var að hann yrði ekki leikfær og þar með hefði Roy Hodgson ekki átt neinn heilan vinstri bakvörð, en Fabio Aurelio og Paul Konchesky eru báðir meiddir auk Daniels Agger sem einnig hefur leyst bakvarðarstöðuna á þessari leiktíð.
Kelly, sem er í U-21 árs landsliði Englendinga, hefur staðið sig vel í Evrópudeildinni á leiktíðinni og Roy Hodgson hefur treyst honum það vel að hann hefur spilað alla leiki okkar manna í þeirri keppni. Það verður því að teljast líklegt að þessi ungi og efnilegi leikmaður verði í fyrsta sinn í byrjunarliði í Úrvalsdeildarleik í leiknum gegn Blackpool.

Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur -
| Grétar Magnússon
Leikdagar í Meistaradeild -
| Grétar Magnússon
Þriðja treyjan kynnt til leiks -
| Grétar Magnússon
Stórleikur í Deildarbikar -
| Grétar Magnússon
Dregið í Meistaradeild -
| Sf. Gutt
Allt hefur gerst rosalega hratt! -
| Sf. Gutt
Bandaríkjamarkaður er mjög mikilvægur! -
| Sf. Gutt
Af leikmannamálum -
| Sf. Gutt
Ætlum að vera tilbúnir í fyrsta leik!
Fréttageymslan