| Sf. Gutt
Stuðningsmenn Liverpool eru enn ósáttir við eigendur félagsins og létu álit sitt á þeim berlega í ljós á dögunum þegar Liverpool mætti Stoke City á Anfield Road.
Margir áhorfendur héldu þá mótmælaspjöldum á lofti þar sem þeir George Gillett og Tom Hicks voru vinsamlegast beðnir um að yfirgefa félagið nú þegar. Það má því ljóst vera að þeir amerísku eru ekki ofarlega að vinsældarlista þorra stuðningsmanna Liverpool.
Þau samtök, sem stefna að því að kaupa Liverpool F.C., eru enn í fullu fjöri en ekki er gott að segja til um hvort þau komist í þá aðstöðu. Svo er alltaf spurning um einhverja moldríka í Arabaheiminum! Að minnsta kosti er það á hreinu að meira fjármagn væri mjög vel þegið inn í rekstur Liverpool F.C.
Lítið heyrist nú frá þeim félögum George og Tom. Þó lét Tom hafa eftir sér um helgina að hafist yrði handa um byggingu nýja Anfield um leið og fjármálamarkaðir væru komnir í lag eftir kreppuna. Þá er bara að bíða eftir því að kreppan lagist!
TIL BAKA
Mótmæli!
Stuðningsmenn Liverpool eru enn ósáttir við eigendur félagsins og létu álit sitt á þeim berlega í ljós á dögunum þegar Liverpool mætti Stoke City á Anfield Road. Margir áhorfendur héldu þá mótmælaspjöldum á lofti þar sem þeir George Gillett og Tom Hicks voru vinsamlegast beðnir um að yfirgefa félagið nú þegar. Það má því ljóst vera að þeir amerísku eru ekki ofarlega að vinsældarlista þorra stuðningsmanna Liverpool.
Þau samtök, sem stefna að því að kaupa Liverpool F.C., eru enn í fullu fjöri en ekki er gott að segja til um hvort þau komist í þá aðstöðu. Svo er alltaf spurning um einhverja moldríka í Arabaheiminum! Að minnsta kosti er það á hreinu að meira fjármagn væri mjög vel þegið inn í rekstur Liverpool F.C.
Lítið heyrist nú frá þeim félögum George og Tom. Þó lét Tom hafa eftir sér um helgina að hafist yrði handa um byggingu nýja Anfield um leið og fjármálamarkaðir væru komnir í lag eftir kreppuna. Þá er bara að bíða eftir því að kreppan lagist!
Nýlegar fréttir
-
| Sf. Gutt
Tilkynnt um nýjan aðalstyrktaraðila! -
| Sf. Gutt
Reyni að gera mitt allra besta alla daga! -
| Sf. Gutt
Liverpool kaupir ungan franskan framherja! -
| Sf. Gutt
Richard Hughes lætur af störfum -
| Sf. Gutt
Alisson kominn upp í fjórða sæti! -
| Sf. Gutt
Leikjatilfærslur -
| Sf. Gutt
Nýr varafyrirliði -
| Grétar Magnússon
Gluggadagur - hvað er títt? -
| Grétar Magnússon
Stefan Bajcetic seldur til Celta Vigo -
| Grétar Magnússon
Barcola staðfestur
Fréttageymslan

