Bergsteinn Bjarnason

 
Aðfaranótt 14. september á síðasta ári varð alvarlegt bílslys í heimasveit minni, Hrunamannahreppi. Ungur Liverpool aðdáandi, Bergsteinn Bjarnason að nafni, slasaðist alvarlega en hann velti bíl sínum og endaði utan vegar þegar hann var á leið heim til sín með yngri systur og frænku eftir ferð á Selfoss.

Talið er að Bergsteinn, sem var ökumaður bílsins, hafi sofnað undir stýri með þeim afleiðingum að hann missti stjórn á bíl sínum og valt.

Bergsteini láðist að spenna á sig öryggisbelti áður en hann lagði af stað og hentist út úr bílnum í veltunni og endaði í þónokkurri fjarlægð frá bílnum og brotnaði höfuðkúpa hans alvarlega í slysinu. Systir hans og frænka, sem báðar sátu í aftursæti bílsins, sluppu ómeiddar, enda höfðu þær báðar spennt beltin.

Eftir að hafa verið haldið sofandi í öndunarvél í 4-5 vikur, eftir meiriháttar aðgerðir vegna höfuðáverka og annarra aðgerða sem nauðsynlegar eru við þessar aðstæður, gerðist loks kraftaverkið; Bergsteinn vaknaði.

Bataferlið er talið taka allt að tveimur árum og læknarnir bjuggu Bergstein og fjölskyldu hans undir að hann yrði bundinn við hjólastól fyrstu vikurnar og jafnvel mánuðina eftir að hann vaknaði.

Hinsvegar hefur drengurinn sýnt þvílíkar framfarir að læknarnir áttu varla til orð yfir það sem þeir urðu vitni að. Á einni helgi þróuðust hlutirnir svo að læknarnir sáu ekki tilgang með því að halda honum á spítala lengur og sendu hann heim í sveitina, heim í sitt náttúrulega umhverfi.

Ég og Árni Þór Hilmarsson, þjálfari Hrunamanna, fórum í heimsókn til Bergsteins á dögunum. Bergsteinn æfir fótbolta með okkur og voru fréttirnar af slysinu okkur liðsfélögum hans og vinum mikið áfall, því eins og gefur að skilja þá særist öll hjörðin ef einn særist. Þar sannast þau fleygu orð “You’ll Never Walk Alone”

Við ákváðum í ljósi þeirra frétta sem við fengum, að minni Bergsteins hafi skaddast, að minna hann á að fyrir slysið hafi hann haldið með Liverpool. Ég fékk nýja varabúninginn gefins frá Liverpool búðinni í Suðurveri til þess að gefa honum. Þá annaðist Jói Útherji merkinguna á búningnum en á honum stendur nafn hans og númerið 7.

Kallinn kom til dyra og bauð okkur velkomna og það var ekki laust við að maður klökknaði við það að sjá drenginn lifandi, hvað þá standandi og gangandi eftir svo alvarlegt slys.

Við afhentum honum búninginn, sem var gjöf frá öllum vinum hans og liðsfélögum í Hrunamönnum, í þeim tilgangi að minna hann á hverja hann studdi fyrir slysið og hann fengi ekki að komast upp með að halda með einhverjum öðrum eftir það en flestir okkar félaganna erum stuðningsmenn Liverpool.

Í kjölfarið sagði Gyða, móðir Bergsteins, að póstkort sem við sendum honum á spítalann hafi verið í miklu uppáhaldi hjá honum, en á það skrifuðu allir leikmenn liðsins og undirskriftin var “You’ll Never Walk Alone”.

“Það vildi þannig til að þegar hann komst til meðvitundar þá fór ég í gegnum kortin með honum sem hann hafði fengið send og þar á meðal var kortið frá ykkur (Hrunamönnum) og þegar hann las slagorðin neðst á kortinu þá áttaði hann sig strax á að um einkunnarorð Liverpool var að ræða. Hann átti erfitt með að muna hvað mamma sín hét en hann vissi hverju slagorðin tengdust” sagði Gyða við okkur hlæjandi.

Aðspurður hvort að hann myndi nokkurn tíma sleppa beltinu þegar hann settist inn í bíl, svaraði hann að sjálfsögðu neitandi og hvetur alla til þess að spenna beltin, það sé nauðsynlegt því það verða ekki allir jafn heppnir og hann var.

Þótt framfarir síðustu mánaða séu miklar og með hreinum ólíkindum, er langur vegur eftir framundan í bataferli Bergsteins. En með seiglu, ákveðni og örlítilli þrjósku stefnir Bergsteinn á að ná fullum bata til að spila fótbolta og stunda aðrar íþróttir sem hann nýtur sín í.

Liverpool búðinni og Jóa Útherja kunnum við okkar bestu þakkir fyrir þeirra þátt og framlag og minnum á að skrefið sem við stígum svo auðveldlega í dag, getur verið heljarstórt stökk á morgun. Spennum beltin til þess að koma í veg fyrir slysin.

Bjarki Eiríksson
Flúðum
 
 
 
TIL BAKA