Jón Guðmundsson

Hvað heitir þú?
Jón Guðmundsson

Hvenær ertu fæddur?
Á því herrans ári 1954.

Hvenær byrjaðir þú að halda með Liverpool og hvers vegna?
Ég varð þeirrar gæfu aðnjótandi að fara á Laugardalsvöllinn 17. ágúst 1964. Fyrsti Evrópuleikur Liverpool og það gegn KR. Eftir það varð ekki aftur snúið.

Hvenær sástu þinn fyrsta leik?
Sjá svar að ofan.

Hvað áttu margar Liverpool-treyjur?
Ég á eina Liverpooltreyju eða reyndar peysu. Fór í henni á Anfield árið 1995 og klæddist henni alltaf daginn eftir sigurleik í mörg ár. Nýlega áritaði Ian Rush hana fyrir mig svo hún er orðin gulls ígildi.

Hver er uppáhaldstreyjan þín?
Sjá svar að ofan.

Hver er uppáhaldsleikmaður þinn sem nú er í Liverpool?
Það er Steven Gerrard. Sannur Liverpoolmaður.

Hver er uppáhalds fyrrverandi leikmaður Liverpool?
Roger Hunt. Sá hann leika með Liverpool hér heima og svo með enska landsliðinu á HM 1966 á Wembley. Hann var fyrsta átrúnaðargoðið mitt.

Minnisstæðasti leikurinn?
Minn eini leikur á Anfield. Haustið 1995 er við sigruðum Manchester City 6:0. Ég var gjörsamlega raddlaus eftir þann leik. Öskraði sex sinnum úr mér lungun.

Hefur þú farið á Anfield? Ef svo er hvað oft, og á hvaða leik eða leiki?
Sjá svar að ofan.

Ferð þú oft á liverpool.is?
Ég fer af og til á þann vef. Sannarlega glæsilegur vefur.

Notar þú spjallborðið á liverpool.is?
Nei, það hef ég ekki gert.

Ef þú fengir að vera framkvæmdastjóri Liverpool í einn dag hvað væri það fyrsta sem þú myndir gera?
Gera samning við Steven Gerrard uns hans ferli lyki.

Hvaða nafn og númer myndir þú setja aftan á Liverpooltreyjuna þína?
Ætli Roger Hunt hafi ekki verið númer 8. Þess vegna yrði það Hunt og númer 8.

Hvaða stöðu myndir þú vilja spila á Anfield og hvers vegna?
Ég myndi vilja vera framherji. Ég lék þá stöðu með Val á sínum tíma.

Hvernig líst þér á Rafael Benítez?
Hann er sá besti síðan Kenny Dalglish var og hét.

Hvaða leikmann annars liðs myndir þú vilja sjá á Anfield?
Frank Lampard.  

Hvaða núverandi leikmann Liverpool myndir þú helst vilja hitta?
Robbie Fowler.

En fyrrverandi leikmann?
Alla gömlu kallana sem léku fyrir 1970 og Kenny Dalglish. Reyndar hitti ég Kenny Dalglish einu sinni þegar hann kom hingað með Celtic en þá var hann ekki orðinn okkar maður.

Hverjar eru vonir og væntingar fyrir þetta tímabil?
Ég held að annað sætið í deildinni væri ágætis afrek og svo væri auðvitað gaman að vinna enska bikarinn og halda í Evrópumeistaratitilinn.

TIL BAKA