Leikir og úrslit

Umsagnir úr Rauða Hernum fréttablaði Liverpoolklúbbsins á Íslandi

16.08 Southampton 1:2 Riedle 39' (1:1), Owen 73' The Dell - 15.202.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Ince, McAteer, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Berger (Harkness 75'). Bekkurinn: Leonhardsen, Kvarme, Thompson, James.
Spjöld: Riedle, Heggem, Harkness.
Þokkalegur leikur, haustbragur á leik liðsins. Southampton komst yfir en 90 sek. síðar lá boltinn í netinu hjá þeim. Owen lagði upp mark og skoraði, létti aðeins af pressunni sem er á honum. Berger átti gott undirbúningstímabil, tími til kominn að hann fari að sýna eitthvað af viti en hann var slakur í dag. Staunton gat varla komið boltanum skammarlaust frá sér, blessaður. Heggem leikinn, snöggur og sókndjarfur, spennandi leikmaður.

22.08 Arsenal 0:0 Anfield - 44.429.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Ince, McAteer, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Berger (Redknapp 65'). Bekkurinn: Murphy, Harkness, Kvarme, James.
Engin spjöld.
Annar leikurinn í röð sem Ince fær ekki spjald. Berger aftur slakur. Friedel og Carragher koma vel út í vörninni. Friedel hundskammast í leikmönnum, nokkuð sem James gerði mjög sjaldan. Fyrri hálfleikur hrikalega leiðinlegur en á 15. mín. kafla í síðari hálfleik var stórskotahríð að marki Arsenal. Sanngjarnt jafntefli. Parlour átti færi leiksins, skaut yfir fyrir opnu marki, m.a.s. Rob Jones hefði skorað úr þessu færi.

30.08 Newcastle 1:4 Owen 17',18', 32' (1:3), Berger 45'. St James Park - 36.470.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Redknapp (McAteer 85'), McManaman (Thompson 88').
Spjöld: Babb, McManaman, Ince (loksins).
Redknapp kominn í byrjunarliðið eftir meiðsli en í stað þess að Berger var látinn víkja, eins og almennt var búist við, varð McAteer að setjast á bekkinn. Það var eins gott því að Berger var frábær í leiknum, barðist eins og ljón og skoraði glæsilegt mark. Redknapp kemur ferskur inn, nauðsynlegt að hafa hann á miðjunni til að dreifa spilinu, drengurinn á magnaðar sendingar. Gullit var hylltur fyrir leikinn en 18 ára strákur sá um leikinn sjálfan og kvað Gullit gamla í kútinn. Glenn Hoddle landsliðseinvaldur Englendinga var hrifinn: "Owen var ótrúlegur í dag. Hann hefði getað skorað fimm mörk í fyrri hálfleik. Hann klárar færin sín ótrúlega vel. Hann er besti framherjinn á Englandi í augnablikinu".

09.09 Coventry 2:0 Berger 26', Redknapp 48'. Anfield - 44.771.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Bekkurinn: Matteo, Thompson, Harkness, McAteer, James.
Engin spjöld
"Sigur liðsheildarinnar", sagði Houllier. Liverpool verður að vinna leiki eins og þennan til að verða meistari. "Þú getur ekki gert mikið þegar leikmenn sem búa yfir eins miklum klassa og leikmenn Liverpool vinna fyrir hvorn annan eins og þeir gerðu í dag", sagði Gordon Strachan, framkvæmdastjóri Coventry. Engar innáskiptingar. Ince búinn að fá smá útrás í landsleiknum gegn Svíum og fékk því ekkert spjald að þessu sinni.

12.09 West Ham 2:1 Riedle 87'. Upton Park - 26.029.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Harkness, McManaman - Berger, Owen 4-4-2
Innáskiptingar: Heggem (McAteer), Harkness (Riedle), Staunton (Matteo). Bekkurinn: Kvarme, James.
Spjöld: Harkness, Redknapp.
Liðsheildin ekki til staðar í dag. Riedle var tekinn úr liðinu og Harkness settur á miðjuna og Owen látinn dútla einn frammi gegn liði sem hafði fengið 4 mörk á sig gegn Wimbledon nokkrum dögum áður, 4-5-1 í stað 4-4-2. Riedle kom inná í seinni hálfleik, spiluðu 4-4-2 og gekk mun betur (voru 2:0 undir á þeim tímapunkti). "Það voru ekki mistök að leika 4-5-1", sagði Houllier. Það var greinilegur pirringur í Evans eftir leik: "Það er stundum erfitt að komast að sameiginlegri niðurstöðu. Þú ert ekki alltaf sammála hinum aðilanum (Houllier)". Það má leiða líkum að því miðað við ummæli beggja stjóranna að Evans vildi láta Riedle byrja inná í 4-4-2 uppstillingu en Houllier fékk að ráða.

15.09 Kosice 0:3 Berger 18', Riedle 23', Owen 59'. Slóvakía - 4.500.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Harkness, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Ince ekki með vegna ökklameiðsla. Harkness í liðinu í stað Ince. Auðveldur sigur á vægast slöku liði frá Slóvakíu, sýndu leikmönnum Liverpool alltof mikla virðingu. Fowler kom inná og í sinni fyrstu snertingu stakk hann boltanum inn fyrir vörnina á Owen sem skoraði.
Innáskiptingar: Riedle (Fowler 58'), McManaman (McAteer 78'), Redknapp (Leonhardsen 83'). Bekkurinn: Kvarme, Matteo, Björnebye, James.
Engin spjöld.

19.09 Charlton 3:3 Fowler 33' (1:1 víti) , 82' (3:2), Berger 67' (2:2). Anfield - 44.526.
Friedel, Heggem, Staunton, Babb, Carragher - Harkness, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Harkness (McAteer 61'), Staunton (Matteo 64'), Heggem (Thompson 85'). Bekkurinn: Murphy, James.
Spjöld: Carragher.
Liverpool var heppið að sleppa með stig út úr þessum leik, Charlton réð lögum og lofum lengst af og átti skilið að sigra. Riedle átti við meiðsli í nára að stríða og ósennilegt að Fowler hefði verið látinn byrja inná ef Riedle hefði verið til taks en Fowler byrjaði inná í fyrsta skipti í 7 mánuði og skoraði tvö mörk. Ince enn fjarverandi. Babb virðist gjörsamlega úti á þekju. Berger skoraði 4 mark sitt í 5 leikjum með glæsilegu skoti og sýnir og sannar að strákurinn getur staðið sig með glans ef hann er reiðubúinn að leggja örlítið á sig.

24.09 Man Utd 0:2 Old Trafford - 55.181.
Friedel, Björnebye, McAteer, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Riedle (Fowler 75'). Bekkurinn: Leonhardsen, Matteo, Heggem, James.
Spjöld: Carragher, Ince, Berger, Redknapp.
Liverpoolliðið spilaði illa í slökum leik. Heggem og Staunton var refsað fyrir slakan varnarleik gegn Charlton en Babb slapp með skrekkinn og viti menn var besti maður Liverpool í þessum leik. Björnebye og McAteer fengu tækifæri í staðinn en voru báðir sér til skammar. Riedle var kominn aftur á ról en var gjörsamlega úti að aka. Fowler settur aftur á bekkinn enda kappinn ekki enn kominn í fullt form. Friedel átti slæman dag og varð klaufaskapur hans til þess að Man Utd komst á bragðið. Fjöldi Íslendinga á leiknum þó flestir hafi verið Utd-megin. Nokkrir valinkunnir púllarar á vellinum eins og ástsæll ritstjóri og formaður vor sem þetta skrifar. Við vorum að sjálfsögðu í Liverpoolhóp og vakti sérstaka athygli okkar hversu óhemjuvinsæll David Beckham var þar á meðal. 'Posh Spice', kona Beckham var notuð óspart í þeim tilgangi að skjóta á kappann en siðprýði vegna látum við nú ekki vísurnar fylgja með en þó má nefna að ein þeirra efast um faðerni barnsins er kryddstúlkan gengur með undir belti (who is the father of your child?) osfrv..

29.09 FC Kosice 5:0 Ince 52', Redknapp 23', 55' Fowler 53', 90'. Anfield - 23.792.
Friedel, Björnebye, McAteer, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, Leonhardsen - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: McAteer (Heggem 66), Babb (Matteo 63), Ince (Staunton 71'). Bekkurinn: Kvarme, Murphy, Thompson, Friedel.
Spjald: Ince (49)
Firmaliðið frá Slóvakíu átti lítið erindi á Anfield. McManaman hvíldur og byrjaði því Leonhardsen inná í fyrsta skipti á þessu tímabili. Riedle meiddur í nára og Fowler byrjaði inná. Þessa leiks verður helst minnst fyrir skotæfingar Jamie Redknapp. Hann átti örugglega fleiri skot á markið í þessum leik en á öllu síðasta tímabili. Houllier var hrifinn af frammistöðu Redknapp: "Við höfum alltaf vitað að Jamie sé góður skotmaður. Hann tengir miðju og sókn á frábæran hátt og og skotkraftur hans er gríðarlegur og sendingarnar hans hreint frábærar. En hann er fær um að skora um 15 mörk á tímabili. Hann hefur þegar skorað 3 en við viljum fá fleiri mörk frá honum."

04.10 Chelsea 1:1 Redknapp 84'. Anfield - 44.404.
James, Björnebye, McAteer, Babb, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, Leonhardsen - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: McAteer (Heggem 56'), Babb (Matteo 24'), Leonhardsen (Riedle 63'). Bekkurinn: Staunton, Friedel.
Spjöld: Babb (21), Ince (30), Redknapp (45), Matteo (50), Riedle (65).
McManaman hvíldur áfram og Leonhardsen heldur sæti sínu í liðinu. Hrakfallabálkurinn David James í byrjunarliðinu en Friedel var refsað fyrir arfaslaka frammistöðu gegn Man Utd. Það var greinilegt í leiknum að varnarmennirnir, þó sérstaklega Matteo, treystu James ekki og skal engan undra. Babb var tekinn útaf í fyrri hálfleik eftir náin kynni við markstöngina er Casiraghi kom Chelsea yfir. Babb á vonandi börn því að maður stórefast um að hann framleiði fleiri börn eftir þessi heljarátök við stöngina. Liverpool virðist bíða þessa dagana eftir því að fá mark á sig til þess að vakna til lífins og gera tilraun til þess að spila fótbolta. Seinni hálfleikurinn var mun betri en sá fyrri, Ince tók miðjuna í sínar hendur og henti öllum frá sem dirfðust að skipta sér af, unun að sjá. Riedle kom inná í seinni hálfleik en það virðist það sama uppi á teningnum hjá honum og í Utd-leiknum, hann hreinlega virðist ekki vita hvað rangstæða er. Það mætti ætla að hann væri að reyna að setja eitthvað met! Það er einnig athyglisvert hve grófur Redknapp er orðinn. Ince virðist hafa tekið hann í kennslustund. En það gildir það sama um hann og Ince, margar þessar tæklingar virðast illa tímasettar og gjörsamlega óþarfar nema að þeir séu að metast um hvor fær fleiri gul spjöld (staðan 3-4, Ince í vil). McAteer var tekinn útaf í seinni hálfleik fyrir Heggem og undrast maður að kappinn skyldi ekki vera í byrjunarliðinu því að drengurinn er helv*** góður.

Houllier var ekkert sérstaklega hress eftir leik: "Við leikum eins og liðsheild þegar við þurfum að verjast en það virðist skorta eitthvað á sjálfstraustið þegar við erum með boltann, sérstaklega í upphafi leiks. Við höfum alla burði til þess að gera mun betur eins og sást undir lok leiksins. Það er spurningin hvort að þeir leikmenn sem hafa aldrei unnið til meistaratitils búi yfir þeirri skapgerð að geta stigið skrefið til fulls".

17.10 Everton 0:0 Goodison Park - 40,185.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Redknapp (McAteer 45'), Carragher (Kvarme 50'), Berger (Riedle 87').
Bekkurinn: Matteo, Warner.
Spjöld: Björneby (10), Ince (51), Fowler (53), Riedle (90).
Slakur derby-leikur, Fowler sólundaði góðum færum til þess að gera út um leikinn.

20.10 Valencia 0:0 UEFA Cup 2. umferð, seinni leikur. Anfield - 26,004.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, McAteer, Berger, McManaman - Riedle, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar Berger (Leonhardsen 76'), Fowler (Owen 73').
Bekkurinn: Dundee, Matteo, Thompson, Kvarme, Friedel.
Engin spjöld.
Valencia átti náðugan dag. Redknapp meiddur - McAteer tók sæti hans, Owen hvíldur, Riedle byrjar inná.

24.10 Nottm For 5:1 Owen 10', 38', 71'(v), 77', McManaman 23'. Anfield - 44,595.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, McAteer, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: McManaman (Thompson 78') Bekkurinn: Kvarme, Harkness, Fowler, Friedel.
Engin spjöld.
Owen aftur með og hann svaraði þeim gagnrýnisröddum að hann væri "þreyttur" með fjórum mörkum, besti leikur McManaman á tímabilinu. Fowler hvíldur, ekki í nógu góðu formi ennþá.

27.10 Fulham 3:1 Morgan sm. 53', Fowler 66' (v) (2:1), Ince 76'. Deildarbikar. Anfield - 22,296.
Friedel, Björnebye, Murphy, Staunton, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, Thompson - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Murphy (Harkness 73), Owen (Dundee 83). Bekkurinn: Kvarme, Riedle, James.
Spjöld: Björnebye, Thompson.
James, Riedle, Heggem og McManaman hvíldir. Friedel, Fowler, Thompson og Murphy fengu tækifæri til að sanna sig.

31.10 Leicester 0:1 Filbert Street - 21.837.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, McAteer, Berger, McManaman - Owen, Riedle 4-4-2
Liðið dapurt sem aldei fyrr. Leikmenn virðast ekki getað sent boltann skammarlaust frá sér.
Innáskiptingar: Berger (Fowler 80'). Bekkurinn: Harkness, Thompson, Riedle, Friedel.
Spjöld: Carragher, McManaman, McAteer rautt 86', Fowler.

03.11 Valencia 2:2 UEFA Cup 2. umferð, seinni leikur. McManaman 81', Berger 86'. Spánn - 53.000.
Friedel, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Heggem (Dundee 79'), Berger (Harkness 89'), Fowler (McAteer 85'). Bekkurinn: Kvarme, Thompson, Leonhardsen, Friedel.
Spjöld: Redknapp, Heggem, Fowler, Ince rautt 94', McManaman rautt 94'.
Riedle meiddur, Redknapp aftur heill heilsu. Liverpool 1-0 undir og virtist á leið út úr Evrópukeppninni er Owen tók á rás og smellti boltanum á hausinn á Macca og svo hleypti Berger af með vinstri og boltinn skall í netinu. Macca og Ince reknir útaf ásamt varnarmanni Valencia, dómur sem var algjörlega óþarfur. Ince hefði aldrei átt að fá rauða spjaldið, fáránlegur dómur, greinilegt að orðspor hans spilaði stóra rullu í þeirri ákvörðun dómarans.

07.11 Derby 1:2 Redknapp 84'. Anfield - 44,020.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Fowler. 4-4-2
Derby var án sjö fastamanna en það virtist ekki skipta máli. Liðið spilaði með þrjá frammi og sló Liverpool út af laginu snemma í fyrri hálfleik.
Innáskiptingar: Heggem (Thompson 67'), Berger (McAteer 32'). Bekkurinn: Kvarme, Harkness, Friedel.
Spjöld: Berger, Redknapp.

10.11 Tottenham 1:3 Owen 81'. Deildarbikar. Anfield - 20,772.
Friedel, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, McAteer, Leonhardsen, Thompson - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Leonhardsen (Riedle 46'), Owen (Murphy 82') Bekkurinn: Kvarme, Harkness, James.
Spjald: Carragher 54'
James hvíldur, Redknapp og Berger áttu við smávægis meiðsli að stríða. McManaman ekki með næstu vikur og leysir Thompson hann af. Leonhardsen, McAteer og Ince á miðjunni. Owen meiddur útaf eftir að hafa skorað mark Liverpool. Allt brjálað eftir leikinn, aðdáendur liverpool búnir að fá sig fullsadda eftir þrjú töp á heimavelli í röð. Evans rekinn!

14.11 Leeds 1:3 Fowler 68' (v). Anfield - 44,305.
James, Björnebye, Heggem, Staunton, Carragher - Ince, Redknapp, Berger, Thompson - Riedle, Fowler 4-4-2
Innáskipting: Riedle (Leonhardsen 70') Bekkurinn: Kvarme, Babb, Murphy, Friedel.
Spjöld: Thompson, Björnebye.
Fyrsti leikurinn undir stjórn Phil Thompson og Gerard Houllier. James, Berger og Redknapp aftur með, Thompson áfram í liðinu. Riedle í liðinu í stað Owen. Leedsarar gera út um leikinn með þrem mörkum á sjö mínútna kafla undir lok leiksins.

21.11 Aston Villa 2:4 Ince 2', Fowler 7', 58' (1:3), 66' (2:4). Villa Park - 39,241.
James, Heggem, Staunton, Babb, Harkness, Carragher - Redknapp, Ince, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskipting: Berger (McAteer 63), Owen (Riedle 78), Harkness (Björnebye 12). Bekkurinn: Thompson, Friedel.
Spjöld: Thompson, Björnebye.
"Gamla góða" 5-3-2 leikaðferðin, sem Evans var harðlega gagnrýndur fyrir, dregin upp úr skúffunni að nýju, enginn kvartaði þó í leikslok undan þeirri ákvörðun. Allt annað að sjá til liðsins. Redknapp átti hreint út sagt frábæran leik, Fowler eins og þegar hann var upp á sitt besta og Ince hætti öllu kvabbi og fór að spila fótbolta. Thompson fórnað á miðjunni fyrir fimmta varnarmanninn. Harkness fékk sitt tækifæri að nýju á kostnað Björnebye en það á ekki af Harkness að ganga. Brot Collymore og síðar útafrekstur setti ljótan svip á leikinn en Collymore neitaði þó að fólskulegt brot hans á Harkness væri hægt að rekja til ábendingar Collymore til Harkness í febrúar sl. er Collymore sagði að hann ætlaði að fótbrjóta hann í næsta leik. John Gregory framkvæmdastjóri Villa og afgangurinn af umheiminum var þó ekki á sama máli og ætti að veita Collymore þunga refsingu fyrir þetta atvik en hann fékk einungis gula spjaldið og þar með lýsti enska knattspyrnusambandið yfir að það ætlaði að gera ekkert í þessu máli. En góður fótbolti var fyrst og fremst á boðstólum hér. James varði vítaspyrnu Dublin og dómarinn guggnaði á að dæma vítaspyrnu á Babb nokkrum augnablikum síðar. Besti leikur Liverpool á tímabilinu!

24.11 Celta Vigo 3:1 Owen 35' (1:0). Spánn - 31,500.
James, Heggem, Björnebye, Kvarme, Staunton - Redknapp, Carragher, Berger, Thompson - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: Berger (Babb 85'), Thompson (Riedle 78'). Bekkurinn: Wright, Gerrard, Murphy, Leonhardsen, Friedel.
Spjöld: Redknapp, Heggem - báðir í banni í seinni leiknum.
Liverpool aftur yfir í 4-4-2 vegna leikbanns Ince. Carragher settur á miðjuna. Kvarme í stað Babb. Thompson fær aftur tækifæri á miðjunni. Liverpool yfir í hálfleik en skelfilegur varnarleikur færir leikmönnum Celta mörkin á silfurfati. 2:1 hefði verið kannski viðráðanlegt en þriðja markið á 92. mínútu gæti reynst rothöggið.

29.11 Blackburn 2:0 Ince 30', Owen 33'. Anfield - 41,753.
James, Heggem, Staunton, Björnebye, Babb, Carragher - Redknapp, Ince, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Staunton (Kvarme 75'), Heggem (Gerrard 90'). Bekkurinn: Thompson, Murphy, Friedel.
Spjald: Staunton.
5-3-2 tekið upp að nýju, engum að óvörum í þetta sinn. Ince aftur með, Carragher færður í vörnina, Thompson út. Babb tekur sæti Kvarme í liðinu.
Fyrsti heimasigur í Liverpool í mánuð og greinilegt að leikmenn Liverpool voru fegnir, föðmuðu hvern annan í leikslok. Houllier var ánægður en reyndi ekki að breiða yfir þau vandamál sem steðja að liðinu: "Það var tvennt sem var jákvætt í dag - stigin þrjú og að við héldum hreinu. Við höfum gengið í gegnum erfitt tímabil og í augnablikinu erum við að reyna að koma lagi á hlutina. Við verðum að efla sjálfstraustið með aukinni þjálfun, breyttu viðhorfi og sigrum. Við verðum að vera sterkir að nýju en það verður langt uppbyggilegt ferli". Liverpool-klúbburinn á Íslandi fjölmennti á völlinn. Ungur drengur Steven Gerrard að nafni leikur fyrsta leik sinn með aðalliðinu.

05.12 Tottenham 2:1 Berger 55'. White Hart Lane - 36,521.
James, Björnebye, Staunton, Babb, Heggem, Carragher - Gerrard, Ince, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Redknapp í banni, ungur strákur í varaliðinu Gerrard tók sæti hans á miðjunni. Sjálfsmark hjá Carragher og hitt skaust af Fowler í netið voru mörkin sem Tottenham fagnaði í þessum leik. Eftir stórglæsilega aukaspyrnu Berger sótti Liverpool linnulítið og jafntefli hefðu verið sanngjörn úrslit.
Innáskiptingar. Björnebye (Murphy 75'), Gerrard (Thompson 55'). Bekkurinn: Harkness, Kvarme, Friedel.
Spjald: Thompson.

08.12 Celta Vigo 0:1 30,289 - Anfield.
James, McAteer, Staunton, Babb, Matteo - Carragher, Gerrard, Berger, Thompson - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: James (Friedel 63'), Babb (Murphy 46'), Thompson (Riedle 59'). Bekkurinn: Bjornebye, Kvarme, Harkness, Wright.
Spjöld: Carragher, Berger, Murphy.
Liverpool fallið út úr Evrópukeppninni.

13.12 Wimbledon 1:0 Selhurst Park - 26,080.
James, Heggem, Staunton, Babb, Björnebye, Carragher - Ince, Redknapp, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Fowler (Riedle 61'). Bekkurinn: Matteo, Kvarme, Gerrard, Nielsen.
Spjald: Ince
Liverpool hefur aldrei unnið Wimbledon á Selhurst Park í úrvalsdeildinni. Ince, Heggem og Redknapp komnir úr leikbönnum. Liverpool skorti ekki færin til að vinna þennan leik en lánleysi leikmanna virðist algjört. Berger og Carragher stóðu sig með sóma en annað verður sagt um Fowler, Staunton, Ince og þó sérstaklega Björnebye (ég veit hreinlega ekki hvað maðurinn er stundum að hugsa).

12. sæti hlutskipti Liverpool (22 stig í 17 leikjum).
Versti árangur liðsins síðan 1954 þegar Don Welsh var við stjórnvölinn. 8 töp í síðustu 11 leikjum.

19.12 Sheffield Wednesday 2:0 Berger 19', Owen 34'. Anfield - 40.003.
James, Heggem, Babb, Staunton, Bjornebye, Carragher,- Ince, Redknapp, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Heggem (Kvarme 83), Owen (Riedle 88). Bekkurinn: Thompson, McAteer, Friedel.
Spjöld: Björnebye, Berger.

26.12 Middlesbrough 3:1 Owen 17', Redknapp 35' (2-1), Heggem 88'. Riverside Stadium - 34.626.
James, Heggem, Staunton, Babb, Bjornebye, Carragher - Ince, Redknapp, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Middlesbro' hafði ekki tapað á heimavelli í 14 mánuði en réðu ekki við okkar menn í dag. Heggem skoraði stórglæsilegt sólómark undir lokin.
Innáskiptingar: Redknapp (Harkness 89'), Owen (McManaman 76'), Fowler (Riedle 60'). Bekkurinn: McAteer, Friedel.
Spjöld: Babb, Bjornebye, Riedle.

28.12 Newcastle 4:2 (Owen 67',80', Riedle 71',84') 44.605 - Anfield.
James, Heggem, Staunton, Babb, Bjornebye, Carragher - Redknapp, Berger, McManaman - Owen, Riedle 5-3-2
Innáskiptingar: Babb (McAteer 59), McManaman (Gerrard 25 (Thompson 46)). Bekkurinn: Harkness, Friedel.
Engin spjöld.
Þessi leikur var með hreinum ólíkindum. Maður ætti nú að vera búinn að átta sig á því að þessir Liverpool - Newcastle eru ekki búnir fyrr en dómarinn flautar til leiksloka, gjörsamlega óútreiknanlegir. Hamann myrti McManaman í fyrri hálfleik og var rekinn útaf. Macca frá í mánuð. Fowler meiddur. Ince í banni.

03.01 Port Vale 3:0 Owen 34' (v), Ince 38', Fowler 90'. FA Cup 3. umferð Vale Park - 16.557.
James, McAteer, Staunton, Babb, Bjornebye, Carragher - Redknapp, Ince, Berger - Owen, Riedle 5-3-2
Innáskiptingar: Bjornebye (Harkness 70'), Riedle (Fowler 61). Bekkurinn: Kvarme, Thompson, Friedel.
Spjöld: Riedle.

09.01 Arsenal 0:0 Highbury - 38.107
James, Heggem, Carragher, Staunton, Babb, Harkness - Redknapp, Ince, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Staunton (Matteo 62), Owen (Riedle 88). Bekkurinn: McAteer, Thompson, Friedel.
Spjöld: Babb, Ince, Redknapp.
Liverpool slapp með skrekkinn. Framherjar Arsenal lélegir og áttu varnarmenn Liverpool í litlum vandræðum með þá. Staunton meiddist og fór af leikvelli sem var mikið ánægjuefni þar eð maðurinn er stórhættulegur varnarleik Liverpool. Houllier ánægður með stífan varnarleik liðsins: "þeir fengu ekki á sig mark og það var fyrir öllu í þessum leik".

16.01 Southampton 7:1 Fowler 22',37',47', Matteo 35', Carragher 55', Owen 63', Thompson 73' Anfield - 44.011.
James, Heggem, Carragher, Matteo, Babb, Bjornebye - Ince, Redknapp, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Carragher (Kvarme 79), Ince (Thompson 73), Owen (Riedle 73). Bekkurinn: McAteer, Friedel.
Spjöld: Carragher, Ince.
Annað en stífur varnaleikur upp á teningnum í þessum leik.

24.01 Manchester United 1:2 Owen 3' FA Cup 4. umferð Old Trafford - 54.591.
James, Heggem, Carragher, Matteo, Harkness, Bjornebye - Redknapp, Ince, Berger - Fowler, Owen 5-3-2
Innáskiptingar: Ince (McAteer 71). Bekkurinn: Leonhardsen, McManaman, Kvarme, Friedel.
Spjöld: Matteo, Owen.
Jesús Pétur og hin heilaga jómfrú!!! Solskjaer stal leiknum á lokamínútunum. Carragher besti maður leiksins.

30.01 Coventry City 1:2 McManaman 86' (1:2) Highfield Road - 23.056.
James, Heggem, Matteo, Staunton, Song, Bjornebye, Redknapp, Berger, Ince, Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Staunton (Gerrard 86), Song (McManaman 68), Berger (Riedle 77). Bekkurinn: Harkness, Friedel.
Spjöld: Heggem, Song
Leiðinlegur völlur og það hefði ekki komið á óvart þó ein og ein moldvarpa hefði skotið upp hausnum. Carragher í banni og tók Song sæti hans í liðinu þrátt fyrir að vera ekki í góðri leikæfingu. Kappinn stóð sig með sóma og vel hugsanlegt að þar sé kominn sá leiðtogi sem okkur hefur skort í vörnina um nokkurt skeið.

06.02 Middlesborough 3:1 Owen 9', Heggem 44', Ince 45' Anfield - 44.384.
James, Heggem, Carragher, Staunton, Matteo, Bjornebye, McManaman, Ince, Redknapp Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Owen (Gerrard 81), Fowler (Riedle 81). Bekkurinn: Song, Harkness, Friedel.
Spjöld: Ince, Matteo 64' (rautt).
Song á bekknum þar eð kappinn þarf að koma sér í aðeins betra form áður en hann getur farið á fullt. Liverpool sundurspilaði 'Boro og var enginn betri en Jamie Redknapp. Gascoigne dáist af kollega sínum: "Hann hefur yfir að ráða frábærri útsjónarsemi, mikilli leikni og hann er mjög ógjarn á að missa boltann, og misnotar nánast aldrei sendingarnar sínar. Hann hefur líka frábært viðhorf til knattspyrnu. Hann getur talað um fótbolta allan daginn og þessi drengur á eftir að ná langt. Það er laust sæti á miðju Englendinga og ef heldur áfram sem horfir þá mun hann vinna sér það sæti í byrjunarliði Englendinga. Mér var ljóst fyrir löngu síðan að Jamie væri maður framtíðarinnar, maður sér býsna fljótt hvort leikmenn verða góðir leikmenn eða frábærir leikmenn, Jamie á eftir að verða frábær leikmaður. Hann hefur lent í slæmum meiðslum og ef þau eru endanlega að baki, þá verður hann óstöðvandi".

13.02 Charlton 0:1 The Valley - 20,043.
James, Heggem, Carragher, Staunton, Matteo, Bjornebye - McManaman, Ince, Redknapp - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Bjornebye (Song 74'), Heggem (Gerrard 81'), Owen (Riedle 81'). Bekkurinn: Thompson, Friedel.
Spjöld: Ince, Staunton, Bjornebye. Rautt: Carragher (68').
Carragher rekinn útaf vegna leikrænna tilburða hjá Svíanum Pringle. Houllier botnaði ekkert í útafrekstrinum sem og aðrir sem á horfðu. Enska knattspyrnusambandið fékkst svo ekki einu sinni til að skoða myndband af atvikinu og þriggja leikja bann staðreynd. Mínútu eftir að Carragher var rekinn útaf skoraði Keith Jones sigurmarkið.

20.02 West Ham 2:2 Fowler 22' (1-0), Owen 45' (2-1) Anfield - 44.511.
James, Heggem, Song, Staunton, Babb, Bjornebye - Carragher, Redknapp, McManaman - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: McManaman (Berger 66'), Bjornebye (Riedle 77'). Bekkurinn: Ferri, Harkness, Friedel.
Spjald: Carragher.
West Ham skoraði sitt fyrsta mark á Anfield á þessum áratug er Lampard jafnaði leikinn á 24. mínútu. Liverpool átti að vera búið að klára þennan leik áður en Keller jafnaði beint úr hornspyrnu!

27.02 Chelsea 1:2 Owen 77' (1-2) Stamford Bridge - 34.822.
James, Heggem, Kvarme, Matteo, Babb, Bjornebye - Redknapp, Ince, Berger - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Heggem (McManaman 9'), Ince (Ferri 48'), Berger (Riedle 80'). Bekkurinn: Staunton, Friedel.
Spjald: Fowler (53).
39 stig eftir 27 leiki = 7. sæti.
Babb gaf Chelsea forystuna snemma í leiknum er hann handlék boltann innan teigs. Þessa leiks verður helst minnst vegna samskipta Le Saux og Fowler. Chelsea hefði átt að leika einum manni færri frá 53. mín. en dómaranum yfirsást ljótt brot Le Saux.

13.03 Derby 2:3 Fowler 36'(v) (1-1), 57' (2-3) Pride Park - 32,913.
James, Heggem, Song, Staunton, Babb, Matteo - Gerrard, Redknapp, Berger, - Owen, Fowler 5-3-2
Innáskiptingar: Staunton (Bjornebye 24'), Owen (Riedle 46'). Bekkurinn: Leonhardsen, Kvarme, Friedel.
Spjald: Fowler
Glórulaus varnarleikur varð Liverpool að falli enn eitt skiptið.

03.04 Everton 3:2 Fowler 15'(v) (1-1), 21' Berger 82' (3-1) Anfield - 44.852.
James, Heggem, Song, Staunton, Matteo, - McManaman, Redknapp, Ince, Berger - Owen, Fowler 4-2-2
Innáskiptingar: Heggem (Gerrard 71'), Fowler (Riedle 85'). Bekkurinn: Thompson Björnebye, Friedel.
Enginn leikmaður Liverpool spjaldaður í derbyleik, ótrúlegt en satt!
Loksins, loksins sigraði Liverpool Everton eftir 5 ára ströggl. En enn og aftur var það ekki þessi glæsti sigur sem var í sviðsljósinu heldur varð húmor Robbie Fowler þess aftur valdandi að "jakkafötin" í enska knattspyrnusambandinu stöppuðu niður fæti, fitjuðu upp á nefið og luku keppnistímabilinu hjá Fowler. Meðlimir í aðdáendaklúbbi Liverpool fjölmennir á leiknum og skemmtu sér konunglega enda hafði leikurinn allt upp á að bjóða. Gerrard kom inná vegna meiðsla Heggem og varði tivsvar á línu og bjargaði Liverpool í lokin.

05.04 Nottm For 2:2 Redknapp 15' (0-1), Owen 72' (1-2) City Ground - 28.374.
James, Carragher, Matteo, Song, Staunton - McManaman, Ince, Redknapp, Berger - Owen, Fowler 4-4-2
Innáskiptingar: McManaman (Riedle 64'), Fowler (Gerrard 78'). Bekkurinn: Leonhardsen, Björnebye, Friedel.
Engin spjöld.
Leikmenn Liverpool geta sjálfum sér um kennt, Rodney Marsh sérfræðingur SKY-sjónvarpsstöðvarinnar sagði að Liverpool hefði átt að vinna þennan leik 7-2 en síðasta skotið í leiknum átti Van Hooijdonk beint úr aukaspyrnu og þar við sat. Frábært mark hjá Redknapp.

12.04 Leeds 0:0 Elland Road - 39,541.
James, Gerrard, Babb, Carragher, Matteo - McManaman, Ince, Berger, Redknapp - Fowler, Owen 4-4-2
Innáskiptingar: Owen (Riedle 25'). Bekkurinn: Björnebye, Thompson, Ferri, Friedel.
Spjald: Berger.
Liverpool kom til að verjast og náði ætlunarverki sínu. Liverpool hafði spilað 10 leiki án þess að halda hreinu og var Houllier hæstánægður með þetta afrek. Owen meiddist og verður frá í 3 mánuði.

17.04 Aston Villa 0:1 Anfield - 44,306.
James, Song, Babb, Matteo, Bjornebye - McManaman, Redknapp, Ince, Carragher - Fowler, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Song (Dundee 86'), Bjornebye (Leonhardsen 46'). Bekkurinn: Staunton, Ferri, Friedel.
Spjöld: Song, Riedle.
Síðasti leikur Fowler með Liverpool á þessu tímabili. Villa átti leikinn og átti sigurinn fyllilega skilið.

21.04 Leicester 0:1 Anfield - 36,019.
James, Song, Babb, Matteo, Carragher - Thompson, Redknapp, Ince, Leonhardsen - McManaman, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Thompson (Dundee 67'). Bekkurinn: Kvarme, Staunton, Ferri, Friedel.
Engin spjöld
Lægsti áhorfendafjöldi á Anfield á þessu tímabili. McManaman brenndi af þvílíku dauðafæri í upphafi leiks. Og hlaut ekki þakkir fyrir. Marshall skoraði á síðustu mínútu og niðurlæging Liverpool algjör.

44 stig eftir 33 leiki - 10. sæti.

24.04 Blackburn 1:3 McManaman 23', Redknapp 32', Leonhardsen 32' Ewood Park - 29,944.
Friedel, Song, Staunton, Matteo, Carragher - Thompson, Ince, Redknapp, Leonhardsen - McManaman, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Song (Kvarme 83'), Riedle (Dundee 80'). Bekkurinn: Ferri, Björnebye, James.
Spjöld: Thompson, Song, Matteo
McManaman skoraði fyrsta markið eftir varnarmistök sem Liverpool hefði verið stolt af. Redknapp skoraði næsta mark með þvílíku þrumuskoti að annað eins hefur ekki sést.

01.05 Tottenham 3:2 Redknapp 49' (v), Ince 77', McManaman 79' Anfield - 44,007.
Friedel, Kvarme, Carragher, Staunton, Matteo - Thompson, Redknapp, Ince, Leonhardsen - McManaman, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Kvarme (Gerrard 46'), Thompson (Bjornebye 87'), Leonhardsen (Song 75'). Bekkurinn: Dundee, James.
Spjald: Riedle
Liverpool lenti 0-2 undir en Tottenham missti mann útaf á 44. mínútu er Taricco var rekinn útaf. Barátta Paul Ince og innáskipting Steven Gerrard í hálfleik varð öðru fremur til þess að Liverpool sigraði í dag.

05.05 Man Utd 2:2 Redknapp 69' (v) (1:2), Ince 87' Anfield - 44,702.
Friedel, Song, Matteo, Staunton, Babb, Carragher - Redknapp, Ince, Leonhardsen - McManaman, Riedle 5-3-2
Innáskiptingar: Song (Berger 56'), Staunton (Thompson 79'). Bekkurinn: Ferri, Björnebye, James.
Engin spjöld
"La Vita e Bella" - Lífið er yndislegt á dögum sem þessum. Var þetta víti?, ekki segir Leonhardsen það sjálfur, hvaða máli skiptir það?, átti Irwin að vera rekinn útaf? - auðvitað! Þetta hlýtur að vera einn af eftirminnilegustu leikjum Paul Ince á ferlinum, ekki leiðinlegt fyrir hann að spilla öllu fyrir sínum gömlu félögum. Aðdáendur Utd grétu í leikslok á Anfield - svona á boltinn að vera!

08.05 Sheffield Wednesday 1:0 Hillsborough - 27,383.
Friedel, Staunton, Matteo, Carragher, Gerrard - Redknapp, Ince, Berger, Leonhardsen - McManaman, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Gerrard (Song 46') - Redknapp (Ferri 82'), Berger (Thompson 66'). Bekkurinn: Babb, James.
Spjald: Gerrard
Leikmenn Liverpool virkuðu þreyttir eftir leikinn gegn Man Utd, að sögn Houllier. Wednesday skoraði sigurmarkið á lokamínútunum eftir að Liverpool hafði misst boltann á miðjunni - sending út á kantinn - boltinn fyrir markið = skalli í mark - hljómar kunnuglega ekki satt?!

16.05 Wimbledon 3:0 Berger 12', Riedle 50' , Ince 65' Anfield - 41,902.
Friedel, Staunton, Matteo, Carragher, Song - Redknapp, Ince, Berger, Leonhardsen - McManaman, Riedle 4-4-2
Innáskiptingar: Staunton (Babb 46' (Thompson 74'), Song (Heggem 85'). Bekkurinn: Björnebye, James.
Spjöld: Babb, Riedle

TIL BAKA