)

Sami Hyypia

Sami Hyypia náði þeim merka áfanga á dögunum að leika sinn fjögur hundraðasta leik með Liverpool. Finninn er sannarlega búinn að standa fyrir sínu hjá Liverpool. Finninn stæðilegi kom algerlega óþekktur til Liverpool vorið 1999 frá Willem II í Hollandi. Kaupverðið var tvær og hálf milljón sterlingspunda. Á nútíma markaði telst það gjafverð fyrir jafn góðan leikmann. Sami varð strax fastamaður í liði Liverpool, sem miðvörður, og hefur verið það alla tíð síðan. Hann hefur átt mjög farsælan feril hjá Liverpool og var um tíma fyrirliði liðsins. Reyndar varð hann fyrstur erlendra leikmanna til að taka við bikar sem fyrirliði Liverpool.

Lengst af ferils síns var Stephane Henchoz félagi Sami í vörninni. Þeir tveir mynduðu saman gríðarlega sterkt miðvarðarpar. Um tíma hefur það líklega verið eitt, ef ekki það besta, í allri Evrópu. Sérstaklega náðu þeir vel saman á Þrennuleiktíðinni 2000/01. Jamie Carragher tók svo við að standa vaktina í hjarta varnar Liverpool við hlið Sami vorið 2003. Ekki voru þeir Jamie síðri saman en Sami og Stephane. Sami var fastamaður í liði Liverpool þar til á þessari leiktíð. Daninn Daniel Agger er nú orðinn sá leikmaður sem Rafael Benítez vill nota við hlið Jamie Carragher. Sami hefur samt leikið um þrjátíu leiki á þessari leiktíð.

Það er í mörg horn að líta í stöðu miðvarðar og oft gengur mikið á í vörninni. En það segir sína sögu um hversu góður leikmaður Sami er að hann hefur örsjaldan verið bókaður. Einu sinni hefur honum verið vikið af leikvelli. Þessar staðreyndir segja mikið um hversu vel Sami staðsetur sig. Eins er hann framúrskarandi góður í öllum návígjum. Hvort sem þau eru á lofti eða á landi.

Sem fyrr segir hefur Sami nú leikið 400 leiki fyrir hönd Liverpool. Hann er þar með næst leikjahæstur núverandi leikmanna Liverpool. Reyndar hefur aðeins Jamie Carragher náð þessum leikjafjölda á seinni árum. Það segir sína sögu að aðeins einn útlendingur hefur leikið fleiri leiki með Liverpool í sögu félagsins. Þar er um að ræða Bruce Grobbelaar. Í þessum 400 leikjum hefur hann skorað 29 mörk. Aðeins fjórir aðrir núverandi leikmenn Liverpool hafa skorað fleiri mörk fyrir félagið. Það segir líka sína sögu að aðeins einn útlendingur hefur leikið fleiri leiki en Sami fyrir Liverpool í sögu félagsins! Sami hefur líka verið verðugur fulltrúi þjóðar sinnar og hefur leikið 82 landsleiki fyrir Finna. Í þeim hefur hann skorað fimm mörk. Sem dæmi um það hversu virtur Sami er í Finnlandi þá hefur hann sex sinnum verið kosinn Knattspyrnumaður ársins þar í landi.

Sami hefur, sem fyrr segir, leikið með Liverpool frá árinu 1999. Hann hefur unnið níu titla á ferli sínum með Liverpool. Deildarbikarinn 2001 og 2003. Hann vann Evrópukeppni félagsliða, F.A. bikarinn, Góðgerðarskjöldinn og Stórbikar Evrópu 2001. Árið 2005 bætti hann svo Evrópubikarnum og öðrum Stórbikar í verðlaunasafn sitt. Hann vann svo F.A. bikarinn árið 2006.

Sami hefur verið einn besti leikmaður Liverpool frá því hann kom til félagsins. Eftir að hafa verið fastamaður í byrjunarliði Liverpool í sjö leiktíðir er nú farið að síga á seinni hluta ferils hans hjá félaginu. Hann hefur þó sýnt og sannað í þeim leikjum sem hann hefur spilað á þessari leiktíð að hann á töluvert eftir. Sami stendur enn fyrir sínu og það væri mikill fengur að því að hann myndi vera eins og eina leiktíð enn hjá Liverpool. Sami á sannarlega skilið að fá hamingjuóskir á þessum tímamótum!

Sf. Gutt.


TIL BAKA