Bara Liverpool!
Steven Gerrard, MBE, hefur ítrekað sagt að hann vilji ekki fara frá Liverpool. Sumir fjölmiðlar taka þó upp margnota fréttir sínar af og til sem kveða á um að hin og þessi félög vilji fá Steven í sínar raðir. Víst er að mörg félög á Bretlandi og víðar myndu vilja hafa Steven Gerrard í sínum röðum. Hann segist þó hvergi fara og síðast gerði hann það í viðtali við The Times í síðasta mánuði. Í sama viðtali sagðist hann ekki getað hugsað sér að leika með neinu öðru liði á Englandi en Liverpool!
"Ef ég væri ekki leikmaður þá myndi ég örugglega hafa sömu skoðanir og Kopites. Þó svo að eitthvað félag eigi mikið af peningum þá þýðir það ekki að félagið sé stórveldi. Félag þarf að vinna sér inn rétt til að geta talist til stórliða. Til þess þarf félag að vinna marga titla og búa yfir merkilegri sögu. Ég sagði aldrei að Chelsea væri það lið sem ég myndi fara til ef ég færi. Ef sú staða kæmi upp að ég yrði að fara þá myndi mér hugnast það betur að spila í öðru landi. Mér myndi þykja það mjög skrýtið og öfugsnúið að snúa aftur og leika gegn félaginu sem ég hef verið hjá frá því ég var átta ára."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

