Forsíða

Steven Gerrard

Fæðingardagur: 30.05.1980
Fæðingarstaður: Liverpool
Fyrri félög:
Kaupverð: £0
Byrjaði / keyptur: 01.10.1998
Upplýsingar á LFCHistory.net: Skoða
Stjarna Steven Gerrard hefur risið svo hratt að hreint er með ólíkindum. Aðeins einu og hálfu ári eftir að hann lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool lék hann sinn fyrsta landsleik fyrir A-landsliðið.

"Gerrard hefur verið frábær hjá Liverpool og ég held að hann eigi glæsta framtíð fyrir sér í boltanum. Hann hefur alltaf hrifið mig þegar ég hef séð hann spila. Hann getur tæklað, gefið boltann og leikið í mismunandi stöðum sem er mikilvægur eiginleiki. Liverpool er ógnarstór klúbbur fyrir svo ungan strák að gegna slíku ábyrgðarhlutverki en það virðist ekkert hræða hann." - Alan Shearer.

Það er greinilegt að Shearer hafi haft fulla grein fyrir því hvað hann var að segja en Gerrard hefur hreinlega farið á kostum hjá Liverpool á síðustu leiktíðum.

Undir stjórn Gerard Houllier, sem var sá knattspyrnustjóri sem gaf Gerrard sín fyrstu tækifæri í aðalliði Liverpool, sást að hann væri mjög mikið efni í mjög góðan leikmann. Þegar Rafael Benítez tók við stjórnartaumum Liverpool af Houllier þá fór Gerrard úr því að vera góður leikmaður í það að vera frábær leikmaður.

Á fyrsta tímabilinu undir stjórn Benítez, 2004-2005, sást hve miklu hann náði úr leik Gerrard en hann átti stóran þátt í því að leiða lið sitt til Evrópumeistaratitils og var hann það ár valinn dýrmætasti leikmaður Meistaradeildarinnar og hann var þriðji í valinu á Gullknettinum sem er verðlaunaður fyrir besta leikmann heims.

Í kjölfar þess var óttast að hann myndi yfirgefa Liverpool og ganga í raðir Chelsea en þess í stað ákvað hann að framlengja samning sinn við Liverpool og hjálpa félaginu að komast aftur í fremstu röð.

Leiktíðina eftir, 2005-2006, sem er ein sú allra besta sem Gerrard hefur átt hjá Liverpool en þá skoraði hann 23 mörk í 53 leikjum og var valinn Leikmaður ársins valið af leikmönnum, en hann var þá fyrsti leikmaður Liverpool til að hljóta verðlaunin síðan John Barnes vann þá árið 1988. Það tímabil leiddi hann lið sitt alla leið í FA bikarnum og lyfti hann bikarnum fyrir hönd liðsins eftir sigur í mögnuðum leik gegn West Ham.

Gerrard hefur skorað í fjórum stórum úrslitaleikjum, eitt í úrslitum Meistaradeildarinnar, eitt í úrslitum Evrópukeppn félagsliða, eitt í FA bikarnum og eitt í Deildarbikarnum.

Hann hefur verið fyrirliði Liverpool í mörg ár og hefur hann einnig borið fyrirliðaband enska landsliðsins oftar en einu sinni.
Tímabilið 2007-2008 var það tímabil sem Benítez ákvað að færa Gerrard framar á völlinn og virðist sem að þar hafi allra sterkasta staða Gerrard verið fundinn en með komu framherjans Fernando Torres þá fullkomnaði það leik Gerrard og náðu þeir tveir saman strax eins og flís við rass og skiluðu þeir saman yfir fimmtíu mörk fyrir Liverpool það tímabil, af þeim skoraði Gerrard 21 mark.

Á síðustu leiktíð fór hann gjörsamlega á kostum og var valinn Leikmaður tímabilsins valið af stuðningsmönnum deildarinnar, stuðningsmönnum Liverpool og af blaðamönnum. Það tímabil skoraði hann 24 mörk þrátt fyrir að hafa átt við smávægis meiðslavandræði að stríða en það nægði því miður ekki til að skjóta Liverpool til langþráðs Englandsmeistaratitils en það er eini titillinn sem hann á eftir að vinna með Liverpool.
Undir lok leiktíðarinnar framlengdi hann samning sinn við Liverpool um tvö ár sem mun halda honum á Anfield þar til hann verður 33 ára gamall, hann hefur sagst dreyma um að leggja skóna á hilluna þegar samningnum líkur og geta litið til baka í framtíðinni og fyllst stolti yfir því að hafa aðeins leikið fyrir Liverpool á ferlinum.

Hann hefur leikið í nær öllum stöðum á vellinum fyrir Liverpool á þeim ellefu leiktíðum sem hann hefur leikið með Liverpool, hann hefur leikið 483 leiki og skorað 120 mörk.
 

Tölfræðin fyrir Steven Gerrard

TímabilDeildBikarDeildarbikarEvrópaAnnaðAlls
1998/199912 - 00 - 00 - 01 - 00 - 013 - 0
1999/200029 - 12 - 00 - 00 - 00 - 031 - 1
2000/200133 - 74 - 14 - 09 - 20 - 050 - 10
2001/200228 - 32 - 00 - 014 - 11 - 045 - 4
2002/200334 - 52 - 06 - 211 - 01 - 054 - 7
2003/200434 - 43 - 02 - 08 - 20 - 047 - 6
2004/200530 - 70 - 03 - 210 - 40 - 043 - 13
2005/200632 - 106 - 41 - 112 - 72 - 153 - 23
2006/200736 - 71 - 01 - 112 - 31 - 051 - 11
2007/200834 - 113 - 32 - 113 - 60 - 052 - 21
2008/200931 - 163 - 10 - 010 - 70 - 044 - 24
2009/201033 - 92 - 11 - 013 - 20 - 049 - 12
2010/201121 - 41 - 00 - 02 - 40 - 024 - 8
2011/201211 - 22 - 13 - 20 - 00 - 016 - 5
Samtals398 - 8631 - 1123 - 9115 - 385 - 1572 - 145

Fréttir, greinar og annað um Steven Gerrard

Fréttir

04.02.2012 08:00 | Sf. Gutt

Verður Steven fyrirliði landsliðsins?

03.02.2012 07:00 | Sf. Gutt

Steven ánægður með endurkomu Luis

26.01.2012 18:00 | Sf. Gutt

Loksins í úrslitaleik!

25.01.2012 08:00 | Sf. Gutt

Allir verða að skila sínu!

13.01.2012 13:05 | Sf. Gutt

Mark spáir í spilin

12.01.2012 16:23 | Sf. Gutt

Steven Gerrard gerir langtímasamning!

12.01.2012 13:16 | Sf. Gutt

Ekki er allt búið enn!

03.01.2012 08:00 | Sf. Gutt

Óttist eigi!

31.12.2011 20:00 | Sf. Gutt

Afmælisbarn dagsins

30.12.2011 08:00 | Sf. Gutt

Steven mættur aftur!

Leikjahornið

Leikur Úrslit
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
LFC - Arsenal 03.mar. 12:45
Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 2 - 1
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin