Var endurkoman þess virði?
Nú þegar ár er liðið frá endurkomu Robbie Fowler má spyrja sig hvort það hafi verið þess virði að fá Guð aftur heim á Anfield Road. Hvað segja staðreyndirnar um árangur þessa fimmta markahæsta manns í sögu Liverpool frá því hann kom heim frá Manchester City.
- Robbie hefur spilað 30 leiki með Liverpool eftir endurkomuna...
- Robbie hefur skorað tíu mörk eftir endurkomuna...
- Tvö mörkin hafa verið sigurmörk...
- Eitt þeirra tryggði jafntefli...
- Robbie hefur færst upp í fimmta sæti yfir markahæstu leikmenn í sögu Liverpool...
- Robbie hefur færst upp í annað sæti yfir markahæstu leikmenn Liverpool í Deildarbikarnum...
- Robbie er nú fimmti markhæsti leikmaður Liverpool á leiktíðinni með fimm mörk...
- Robbie hefur nú leikið 360 leiki með Liverpool...
- Robbie hefur nú skorað 181 mark fyrir Liverpool...
Var þessi ótrúlega endurkoma þess virði? Svari nú hver fyrir sig. Mitt álit er það að Robbie Fowler standi fyllilega undir þeim væntingum sem til hans voru gerðar þegar hann sneri aftur heim til Liverpool. Það liggur fyrir að Robbie er kominn yfir sitt besta á ferli sínum en hann getur enn lagt mikið til Liverpool og það hefur hann sannarega gert!
Það yrði virkilega gaman ef Robbie næði enn að bæta við mörkum áður en ferli hans hjá Liverpool lýkur endanlega. Hann á samning við Liverpool til vors. Hvort sem samningurinn verður framlengdur eða ekki þá geta allir aðilar málsins verið ánægðir með hvernig endurkoman hefur tekist! Mín skoðun er reyndar sú að hún hefði ekki getað mistekist þótt Robbie hefði ekki spilað einn einasta leik og ekki skorað eitt einasta mark. Robbie Fowler hefur gert gott betur en það og vonandi hefur hann enn ekki sagt sitt síðasta orð á ferli sínum með Liverpool!

-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

