Steven Gerrard:" Við eigum enn langt í land."
Steven Gerrard tjáir sig um frábæran sigur Liverpool á Chelsea og tilkynnir "Þetta voru öflug úrslit, en við eigum enn langt í land."Spyrnur Dirk Kuyt og Jermaine Pennant í fyrri hálfleik á Anfield hafa nú skilað þeim rauðu fimm stigum á eftir Englandsmeisturum Chelsea.
Gerrard viðurkennir að allir innan klúbbsins séu mjög ánægðir með úrslitin, en hefur varað við andvaraleysi núna þegar þeir Rauðu eru að nálgast topp tvö efstu sætin.
Hann sagði:"Hver sigur á heimavelli er góður sigur, en á móti meisturunum eru það sérstaklega góð úrslit."
"Þetta eru öflug úrslit fyrir okkur, en við erum enn í þriðja sæti og við eigum mikla vinnu framundan."
"Það eina sem við getum gert er að horfa fram á næsta leik og næstu frammistöðu og vera vissir um að við gerum sömu hlutina aftur."
Þegar hann var spurður hvort Liverpool væri nú komið í keppnina um titilinn svaraði Gerrard:" Ég vil ekki vera gefa blöðunum einhverjar fyrirsagnir á morgun. Bilið er enn mjög mikið en það eina sem við getum gert er að einbeita okkur að sjálfum okkur og vonast eftir mistökum keppinautanna."
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?

