| Sf. Gutt

Daniel heiðraður í heimalandi sínu

Agger kemur með kærustunni sinni til athafnarinnarDaniel Agger er búinn að standa sig mjög vel með Liverpool frá því hann kom til félagsins í byrjun þessa árs. Hann hefur fengið góðar umsagnir á Englandi en hann er ekki síður mikils metinn í heimalandi sínu. Þetta kom vel í ljós þegar Danir völdu bestu leikmenn ársins 2006. Daniel var þá valinn Efnilegasti leikmaður ársins þriðja árið í röð. Þakkarræða Aggers var fremur stutt en hnitmiðuð: "Takk, takk. Ég skal vera stuttorður. Þetta er heiður og það er gaman að vera vel metinn."

Christian Poulsen, sem leikur með Sevilla, var kjörinn Leikmaður ársins 2006. Christian hefur verið einn lykilmanna Sevilla sem vann bæði Evrópukeppni félagsliða og Stórbikar Evrópu á þessu ári.

Við sama tækifæri var tilkynnt að Michael Laudrup hefði verið valinn besti knattspyrnumaður í sögu Danaveldis. Það getur varla talist umdeild útnefning. Michael lék því miður aldrei með Liverpool en félagið mun hafa haft áhuga á honum áður en hann hleypti heimdraganum og hóf glæstan feril með liðum á borð við Juventus, Barcelona og Real Madrid. 

 

 

 

 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan