Forsíða

Daniel Agger

Fæðingardagur: 12.12.1984
Fæðingarstaður: Hvidovre, Danmörku
Fyrri félög: Rosenhøj, Brøndby
Kaupverð: £5.800.000
Byrjaði / keyptur: 12.01.2006
Upplýsingar á LFCHistory.net: Skoða
Agger er 1,89 m á hæð og örvfættur. Hann getur bæði spilað sem miðvörður og vinstri bakvörður og er einstaklega markheppinn. Hann er góður spyrnumaður og hættulegur í teig andstæðinganna í föstum leikatriðum. Hans helsti ókostur er að hann er ekki sérstaklega snöggur en hann er með góða tækni og bætir upp fyrir hraðaleysið með því að lesa leikinn vel. Agger lék 49 leiki fyrir Bröndby og lék sinn fyrsta A-landsleik fyrir Dani vorið 2005. Hann var einnig valinn efnilegasti leikmaður ársins í Danmörku 2005 og 2004.

Fyrsta tímabil hans hjá Liverpool einkenndist að mestu af meiðslum sem héldu honum frá mestan hluta tímabilsins, frumraun hans þeytti hann gegn Birmingham í febrúar mánuði árið 2006.

Næsta tímabil á eftir, 2006-2007, var Agger orðinn mikilvægur hlekkur í liði Liverpool og skoraði hann mark ársins það tímabil þegar hann skoraði með þrumufleyg af 35 metra færi í sigurleik gegn West Ham United. Hann skoraði einnig gífurlega mikilvægt mark fyrir Liverpool í undanúrslitum Meistaradeildarinnar þegar hann jafnaði með flottu marki gegn Chelsea og skaut Liverpool í vítaspyrnukeppni.

Tímabilið 2007-2008 lenti hann í öðrum meiðslum sem héldu honum frá í langan tíma, í kjölfar þess keypti Liverpool Martin Skrtel sem stóð sig gífurlega vel í hjarta varnarinnar og átti hann erfitt með að vinna stöðu sína aftur á síðustu leiktíð. Margar sögusagnir voru um að Daniel myndi yfirgefa herbúðir Liverpool í sumar en það varð þó ekkert úr þeim þar sem að hann framlengdi samning sinn til Liverpool til ársins 2014.
 

Tölfræðin fyrir Daniel Agger

TímabilDeildBikarDeildarbikarEvrópaAnnaðAlls
2005/20064 - 00 - 00 - 00 - 00 - 04 - 0
2006/200727 - 21 - 02 - 112 - 11 - 043 - 4
2007/20085 - 00 - 00 - 01 - 00 - 06 - 0
2008/200918 - 11 - 02 - 15 - 00 - 026 - 2
2009/201023 - 01 - 00 - 012 - 10 - 036 - 1
2010/201116 - 01 - 01 - 03 - 00 - 021 - 0
2011/201220 - 01 - 13 - 00 - 00 - 024 - 1
Samtals113 - 35 - 18 - 233 - 21 - 0160 - 8

Fréttir, greinar og annað um Daniel Agger

Fréttir

08.02.2012 21:00 | Sf. Gutt

Góð tilfinning að skora!

08.11.2011 05:00 | Sf. Gutt

Daniel talar hreint út!

31.10.2011 10:44 | Grétar Magnússon

Að halda hreinu var mikilvægt

20.09.2011 15:27 | Sf. Gutt

Daniel enn meiddur

09.09.2011 08:48 | Grétar Magnússon

Mölby hrósar Agger

06.09.2011 23:23 | Heimir Eyvindarson

Landsleikjafréttir

10.08.2011 09:53 | Heimir Eyvindarson

Agger gæti ekki verið sáttari

03.08.2011 11:32 | Sf. Gutt

Ekki nógu gott!

06.04.2011 12:03 | Heimir Eyvindarson

Daniel Agger frá út tímabilið

21.03.2011 17:20 | Heimir Eyvindarson

Agger ávísun á sigur?

Leikjahornið

Leikur Úrslit
Man Utd. - LFC 11.feb. 12:45
LFC - Brighton 19.feb. 16:30
Cardiff - LFC 26.feb. 16:00
Leikur Úrslit
LFC - Tottenham 0 - 0
Wolves - LFC 0 - 3
LFC - Man Utd. 2 - 1

Vefkönnun

Hver fannst þér besti leikmaður Liverpool í janúar?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin