| Bragi Brynjarsson

Aðalfundur 2017

Fimmtudaginn 8.Júní næstkomandi verður aðalfundur Liverpoolklúbbsins á Íslandi haldinn á Spot í Kópavogi. Fundurinn hefst kl. 20:00.

Dagskrá fundarins samkvæmt 11.gr laga Liverpoolklúbbsins:

- Kosning fundarstjóra og fundarritara.
- Stjórn leggur fram skýrslu fyrir yfirstandandi starfsár.
- Stjórn leggur fram endurskoðaða reikninga.
- Umræður um skýrslu stjórnar og reikninga.
- Lagabreytingar, löglega fram bornar.
- Kosning tveggja stjórnarmanna til tveggja ára.
- Kosning tveggja varamanna til eins árs.
- Kosning endurskoðanda.
- Ákvörðun um árgjald.
- Önnur mál.

Samkv. lögum klúbbsins þá þarf tilkynna framboð til stjórnar eigi síðar en 14 dögum fyrir aðalfund, Framboð skal senda á netfangið [email protected] eigi síðar en 25. maí nk.

Allir þeir meðlimir sem hafa greitt árgjöldin fyrir tímabilið 2016-2017 hafa atkvæðisrétt á aðalfundinum.

Lög klúbbsins má finna hér.
http://www.liverpool.is/Club/Article/6

Við hvetjum alla meðlimi klúbbsins til að mæta á aðalfundinn og láta málefni hans sig varða.
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan