| Sf. Gutt
Mamadou Sakho verður um kyrrt hjá Liverpool. Þetta varð ljóst þegar lokað hafði verið fyrir félagskipti í gærkvöldi.
Það var alveg á hreinu að Jürgen Klopp var búinn að leggja til að það kæmi Mamadou best að fara í lán. Frakkinn lét það vera og mun hafa hafnað öllum þreifingum í þá átt að fara í annað félag. Með því að vera um kyrrt gæti hann átt á hættu að spila bara með varaliðinu.
Mamadou var sendur heim úr Ameríkuferðinni eftir að hafa verið óstundvís og ekki sýnt nógu mikla einbeitingu. Jürgen gerði Frakkanum grein fyrir því að hann þyrfti að taka sig á og liður í því væri að fara í lán og sýna hvað væri í hann spunnið. Mamadou vildi ekki fara en vonandi tekur hann sig á þannig að hann verði liðinu sínu að gagni.
TIL BAKA
Mamadou Sakho verður um kyrrt
Mamadou Sakho verður um kyrrt hjá Liverpool. Þetta varð ljóst þegar lokað hafði verið fyrir félagskipti í gærkvöldi. Það var alveg á hreinu að Jürgen Klopp var búinn að leggja til að það kæmi Mamadou best að fara í lán. Frakkinn lét það vera og mun hafa hafnað öllum þreifingum í þá átt að fara í annað félag. Með því að vera um kyrrt gæti hann átt á hættu að spila bara með varaliðinu.
Mamadou var sendur heim úr Ameríkuferðinni eftir að hafa verið óstundvís og ekki sýnt nógu mikla einbeitingu. Jürgen gerði Frakkanum grein fyrir því að hann þyrfti að taka sig á og liður í því væri að fara í lán og sýna hvað væri í hann spunnið. Mamadou vildi ekki fara en vonandi tekur hann sig á þannig að hann verði liðinu sínu að gagni.
Nýlegar fréttir
-
| Heimir Eyvindarson
Stjórnaðu spurningakeppni um Liverpool -
| Sf. Gutt
Jeremie Frimpong búinn að ná sér -
| Sf. Gutt
Virgil van Dijk í úrvalslið í fimmta sinn! -
| Sf. Gutt
Dómur upp kveðinn -
| Sf. Gutt
Úr leik! -
| Sf. Gutt
Mohamed fer til Marokkó -
| Sf. Gutt
Engin vandamál! -
| Sf. Gutt
Cody Gakpo meiddur -
| Sf. Gutt
Hvað gerist næst? -
| Sf. Gutt
Sætur sigur á San Siro!
Fréttageymslan

