| Sf. Gutt

Steven frá í minnst mánuð!

Staðfest hefur verið að Steven Gerrard verður frá keppni með Liverpool í mánuð eða svo. Brendan Rodgers ræddi heilsufar fyrirliðans á blaðamannafundi í gær.

,,Eins og fram hefur komið þá verður Steven líklega frá í allt að fjórar vikur eða þar um bil. Hann mun fera í gegnum stífa meðhöndlun næstu vikurnar og vonandi nær að sér eitthvað aðeins fyrr en ætlað er. En á þessu stigi málsins er reiknað með að hann verði frá í fjórar til sex vikur. Við sjáum svo hverju fram vindur."

Steven Gerrard fór af velli á móti West Ham United eftir að hafa tognað aftan í læri. Þá var ljóst að hann yrði frá næstu vikurnar. Vonandi nær hann sér fyrr en ætlað er enda mikilvægi hans ótvírætt.









TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan