| Sf. Gutt
Það er alltaf sama sagan með Daniel Agger þegar meiðsli eru annars vegar. Hann er nú úr leik í bili eftir að hafa farið af velli eftir um hálftíma gegn Tottenham á sunnudaginn.
Nú er komið í ljós að hann er brákaður á síðu. Ekki brotnuðu rif en það er ljóst hann verður ekki með í næsta leik, gegn Brighton, og varla verður hann leikfær á laugardaginn á móti Wolves. Ekki er ólíklegt að Sebastian Coates, sem leysti Daniel af á sunnudaginn, spili á móti Brighton því Martin Skrtel er auðvitað í leikbanni í þeim leik.
Þessi meiðsli koma á versta tíma fyrir Danann sem hefur leikið mjög vel það sem af er leiktíðar. Hann var einmitt rétt á dögunum að ræða um hversu vel hann kæmi til leiks eftir að hafa náð að æfa allt undirbúningstímabilið og vera laus við meiðsli.
TIL BAKA
Daniel enn meiddur
Það er alltaf sama sagan með Daniel Agger þegar meiðsli eru annars vegar. Hann er nú úr leik í bili eftir að hafa farið af velli eftir um hálftíma gegn Tottenham á sunnudaginn. Nú er komið í ljós að hann er brákaður á síðu. Ekki brotnuðu rif en það er ljóst hann verður ekki með í næsta leik, gegn Brighton, og varla verður hann leikfær á laugardaginn á móti Wolves. Ekki er ólíklegt að Sebastian Coates, sem leysti Daniel af á sunnudaginn, spili á móti Brighton því Martin Skrtel er auðvitað í leikbanni í þeim leik.
Þessi meiðsli koma á versta tíma fyrir Danann sem hefur leikið mjög vel það sem af er leiktíðar. Hann var einmitt rétt á dögunum að ræða um hversu vel hann kæmi til leiks eftir að hafa náð að æfa allt undirbúningstímabilið og vera laus við meiðsli.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

