| Grétar Magnússon

Mölby hrósar Agger

Jan Mölby segir að Daniel Agger sé í sínu besta formi og að hann hafi aldrei spilað betur á sínum ferli.

Agger hefur spilað alla þrjá deildarleiki liðsins á tímabilinu og staðið sig vel þar ásamt Jamie Carragher.  Agger var einnig einn besti leikmaður danska landsliðsins sem vann 2-0 sigur á Norðmönnum á þriðjudagskvöldið en Mölby var staddur á Parken og horfði á leikinn.

,,Daniel Agger er í formi lífs síns, og á þriðjudagskvöldið bar hann höfuð og herðar yfir alla aðra leikmenn," sagði þessi fyrrum leikmaður Liverpool.

,,Hann virðist vera sínu besta líkamlegu ástandi og með þeirri vissu virðist sjálfstraust hans aukast með hverjum leiknum sem líður.  Ef hann getur haldið sér góðum áfram þá er ég ekki í vafa um að hann muni verða einn besti varnarmaður í Evrópu."

,,Ég hef alltaf staðið í þeirri trú að þegar hann spilar vel, spilar Liverpool vel.  Og hann er að spila vel núna, það er augljóst."

Agger mun líklega spila í hjarta varnarinnar gegn Stoke á laugardaginn.  Mölby veit að Stoke menn munu reynast mönnum Kenny Dalglish erfið prófraun en hann hefur trú á því að liðið geti náð góðum úrslitum þar.

Hann sagði: ,,Þetta verður erfiður leikur og mun líklega segja okkur mikið um lið Liverpool núna, en ég hef trú á því að þetta lið sé betur undirbúið núna til að takast á við það sem Stoke hefur uppá að bjóða.  Við vitum öll hvar þeir eru sterkastir.  Stoke munu nota innköstin frá Rory Delap, líkamlegan styrk Kenwyne Jones og hæð Peter Crouch.  Þeir munu koma boltanum út á kantana og reyna að pressa Liverpool."

,,Kenny er líklega ánægður með að hafa valmöguleika í varnarmönnum með Martin Skrtel og Sebastian Coates æsta í að taka stöður Carraghers og Aggers."

Mölby bætir við: ,,Mörg lið fara til Stoke og reyna hreinlega að drepa þá niður.  Það hentar þeim hinsvegar.  Það sem hentar þeim ekki er þegar lið sækja á þá, notar hraða og hreyfanleika til að fá þá til að bakka aftar á völlinn."

,,Stoke hafa bætt aðeins við hraða í vörninni hjá sér með kaupunum á Woodgate, en þeir eru ennþá nokkuð brothættir þegar hreyfanlegir leikmenn eins og Luis Suarez og Stewart Downing mæta þeim.  Þeir eru með miðverði sem spila sem bakverðir og það er hægt að sækja á þá.  Ef Liverpool eru skynsamir, á munu þeir fá sín færi, það er ég viss um."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan