| Heimir Eyvindarson
Daniel Agger er himinlifandi yfir því að hafa í fyrsta skipti í langan tíma komist ómeiddur í gegnum heilt undirbúningstímabil.
Agger hefur verið afar óheppinn með meiðsli undanfarin ár en hann segir að nú hafi hann og læknalið Liverpool vonand fundið réttu formúluna.
,,Ég held að mér og læknaliði Liverpool hafi loksins tekist að finna út hvað er best fyrir þennan blessaða skrokk minn. Ég æfi ekkert minna en áður, en ég æfi í minni skömmtum. það virðist henta mér vel."
,,Til dæmis þegar það eru tvöfaldar æfingar þá sit ég hjá á seinni æfingunni. Ég varast að keyra mig út, líkaminn virðist ekki þola mikið álag til lengdar."
,,Ég finn það núna að ég hef aldrei verið í betra formi. Ég finn hvergi til, sem er eiginlega alveg ný tilfinning fyrir mig. Það er frábært að komast í gegnum heilt undirbúningstímabil án vandræða. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast!"
Agger er í landsliðshópi Dana sem mæta Skotum á Hampden Park í kvöld. Nú er bara að vona að hann meiðist ekki.
TIL BAKA
Agger gæti ekki verið sáttari
Daniel Agger er himinlifandi yfir því að hafa í fyrsta skipti í langan tíma komist ómeiddur í gegnum heilt undirbúningstímabil. Agger hefur verið afar óheppinn með meiðsli undanfarin ár en hann segir að nú hafi hann og læknalið Liverpool vonand fundið réttu formúluna.
,,Ég held að mér og læknaliði Liverpool hafi loksins tekist að finna út hvað er best fyrir þennan blessaða skrokk minn. Ég æfi ekkert minna en áður, en ég æfi í minni skömmtum. það virðist henta mér vel."
,,Til dæmis þegar það eru tvöfaldar æfingar þá sit ég hjá á seinni æfingunni. Ég varast að keyra mig út, líkaminn virðist ekki þola mikið álag til lengdar."
,,Ég finn það núna að ég hef aldrei verið í betra formi. Ég finn hvergi til, sem er eiginlega alveg ný tilfinning fyrir mig. Það er frábært að komast í gegnum heilt undirbúningstímabil án vandræða. Ég man ekki hvenær það gerðist síðast!"
Agger er í landsliðshópi Dana sem mæta Skotum á Hampden Park í kvöld. Nú er bara að vona að hann meiðist ekki.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

