| Heimir Eyvindarson

Agger ávísun á sigur?

Daniel Agger hefur verið í feiknaformi undir stjórn Kenny Dalglish. Síðustu sex leikir sem Agger hefur byrjað hafa unnist og liðið hefur haldið hreinu í þeim öllum.

Það virðist ávísun á gott gengi ef Daniel Agger er í byrjunarliði Liverpool. Síðast þegar liðið tapaði leik þrátt fyrir að Daninn byrjaði inn á var 2-1 tapið gegn Blackpool á útivelli 12. janúar. Eins og menn muna var það fyrsti deildarleikur liðsins eftir að Kenny Dalglish tók við liðinu.

Dalglish hefur sett traust sitt á Agger, sem fékk
fá tækifæri undir stjórn Roy Hodgsons, en eftir að Dalglish tók við er Daninn iðulega í byrjunarliðinu ef hann er á annað borð leikfær. Agger virðist svo sannarlega vera traustsins verður því í síðustu sex leikjum sem hann hefur byrjað fyrir Liverpool hefur liðið halað inn öll stigin og aukinheldur ekki fengið á sig eitt einasta mark!

Agger er vitanlega sáttur við hlutskipti sitt þessa dagana, en fyrir áramót leit út fyrir að hann myndi nota fyrsta tækifæri til þess að koma sér í burtu frá Bítlaborginni. Hann segist þó alltaf hafa áhyggjur af því að meiðast.

,,Ég er eiginlega búinn að sætta mig við það að erfið meiðsli séu hluti af lífi mínu. Ég hef verið ansi óheppinn með meiðsli í gegnum tíðina og ég veit að það er ekki gott fyrir félagið hvað ég meiðist oft. Ég get bara því miður ekkert að þessu gert. Ég verð bara að lifa með þessu og vona það besta. Það er enginn vonsviknari yfir þessum meiðslavandræðum en ég."

,,Mér finnst ég vera að komast í gott form núna og ég vona að ég nái góðum meiðslalausum kafla á næstu vikum og mánuðum. Það væri góð tilbreyting."
TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan