L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
01.09.2010 23:09
|
Sf. Gutt
Til heiðurs Jamie Carragher!
Það verður mikil hátíð á Anfield Road á laugardaginn þegar ágóðaleikur verður leikinn þar til heiðurs Jamie Carragher.
Liverpool og Everton
leiða saman hesta sína og ekki spillir það fyrir!
Allur ágóði af leiknum rennur til góðgerðarmála í Liverpool og Merseyside. Peningunum verður útdeilt í gegnum stofnunina "23 Foundation" sem Jamie stofnsetti fyrir nokkru.
Jamie bíður spenntur eftir stóra deginum. ,,Ég vona að þetta verði magnaður viðburður sem allir á Merseyside styðji. Hvert einasta penný mun fara til góðra málefna og það væri gaman að sjá fjölskyldur fylla leikvanginn því þetta á að vera fjölskyldudagur. Það er gríðarlega mikill heiður að spila fyrir hönd Liverpool og nú langar mig að reyna að láta gott af mér leiða."
Sem fyrr segir þá mætast Liverpool og Everton á laugardaginn. Jamie hefur hóað í marga af fyrrum félögum sínum, sem hafa spilað með honum í liði Liverpool í gengum árin, til að spila með sér og verður án efa gaman að sjá marga þeirra á Anfield á nýjan leik. Aðalatriðið er þó að mikið af peningum safnist til góðra málefna og Liverpool vinni!
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir