Forsíða

Frétt

31.08.2010 23:08 | Sf. Gutt

Nabil El Zhar lánaður

Liverpool hefur lánað Marakkómanninn Nabil El Zhar. Það þarf ekki að koma á óvart að hann mun halda til Grikklands en þangað hefur legið straumur frá Liverpool núna í sumar! Hann fer þó ekki til Grikklands fyrir fullt og fast í bili en hann spilar með PAOK út þetta keppnistímabil.

Nabil hefur spilað nokkuð með aðalliði Liverpool síðustu leiktíðir en hann kom lítið við sögu á þeirri síðustu. Hann meiddist illa á undirbúningstímabilinu í fyrra og þau meiðsli settu stórt strik í reikning hans. Hann lék ekkert með Liverpool í sumar.
 
Nabil hefur verið fastamaður í landsliði Marokkó síðustu árin og hann er í landsliðshópnum sem tilkynntur var á dögunum.

Það verður áhugavert að sjá hvort Nabil nær eitthvað að láta að sér kveða í grísku deildinni.

Í sömu frétt á Liverpoolfc.tv, sem greindi frá láni Nabil El Zhar var líka tilkynnt að hollenski strákurinn Vincent Weijl hefði yfirgefið Liverpool og gert samning við spænska liðið SD Eibar. 
 

Til baka

Samstarfsaðilar

  • Úrilla górillan
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • VITA
  • Advania
  • Ölgerðin