Forsíða

Nabil El Zhar

Fæðingardagur: 27.08.1986
Fæðingarstaður: Ales, Frakklandi
Fyrri félög: OAC Ales, Nimes Olympique, St Etienne
Kaupverð: £0
Byrjaði / keyptur: 03.10.2006
Upplýsingar á LFCHistory.net: Skoða
El Zhar var valinn næstbesti leikmaður HM unglinga 2005. Hann er sókndjarfur miðvallarleikmaður. Hann leikur fyrir hönd Marókkós þó hann sé fæddur í Frakklandi því foreldrar hans eru marókóskir.

Hann var keyptur til Liverpool frá St. Etienne í Frakklandi árið 2006 fyrir afar lítinn pening, en kaupverðið náði ekki hálfri milljón.
El Zhar getur leikið á báðum köntunum og fyrir aftan framherjana. Hann lék sinn fyrsta leik fyrir Liverpool í nóvember 2006 þegar hann kom inn á sem skiptimaður í leik gegn Portsmouth, hann lék þrjá aðra leiki það sem eftir leið þess tímabils.

Tímabilið 2007-2008 skoraði hann sitt fyrsta mark fyrir Liverpool á einkar glæsilegan hátt þegar hann skoraði með þrumuskoti af tuttugu metra færi í stöngina og inn í sínum fyrsta byrjunarliðsleik í Deildarbikarleik gegn Cardiff City. Það tímabil spilaði hann afar stórt hlutverk í að gera varalið Liverpool að Englandsmeisturum og skoraði hann einnig fyrsta landsliðsmark sitt í sínum fyrsta landsleik fyrir landslið Marokkó.

Á síðustu leiktíð, 2008-2009, hefur El Zhar verið tíður gestur í leikmannahópi Liverpool en leiktími hans hefur þó að mestu komið eftir að hann kom inn á af varamannabekknum þegar Rafael Benítez leitaði eftir því að fá mann í liðið sem getur teigt á og opnað varnir andstæðinginna.

El Zhar hefur leikið 25 leiki fyrir Liverpool en hann hefur leikið átta leiki fyrir landslið Marokkó og skorað þar tvö mörk.
Það er ljóst að Rafael Benítez hefur mikla trú á El Zhar en hann var einn af fjölmörgum leikmönnum liðsins sem fengu framlengdan samning. Hann er nú samningsbundinn félaginu til ársins 2013 en hann samþykkti þriggja ára framlengingu.
 

Tölfræðin fyrir Nabil El Zhar

TímabilDeildBikarDeildarbikarEvrópaAnnaðAlls
2006/20073 - 00 - 00 - 00 - 00 - 03 - 0
2007/20080 - 01 - 02 - 10 - 00 - 03 - 1
2008/200915 - 00 - 02 - 02 - 00 - 019 - 0
2009/20103 - 00 - 00 - 04 - 00 - 07 - 0
2010/20110 - 00 - 00 - 00 - 00 - 00 - 0
Samtals21 - 01 - 04 - 16 - 00 - 032 - 1

Fréttir, greinar og annað um Nabil El Zhar

Fréttir

12.09.2010 07:00 | SSteinn

Birmingham - Liverpool í beinni á Players

03.09.2010 10:00 | Sf. Gutt

Michael Owen snýr heim til Liverpool

01.09.2010 23:00 | Sf. Gutt

Til heiðurs Jamie Carragher!

31.08.2010 23:52 | Sf. Gutt

Nabil El Zhar lánaður

31.08.2010 22:30 | Sf. Gutt

Emiliano Insua fer í lán

31.08.2010 21:00 | Sf. Gutt

Damien Plessis seldur

30.08.2010 20:08 | Sf. Gutt

Javier Mascherano farinn til Barcelona

28.08.2010 23:08 | Sf. Gutt

Liverpool kaupir Raul Meireles!

27.08.2010 23:19 | Sf. Gutt

Paul Konchesky á leið til Liverpool?

27.08.2010 08:00 | Ólafur Haukur Tómasson

Liverpool tekur tilboði í Mascherano!

LeikjahorniðPlayers

Leikur Úrslit
Birmingham - LFC 12.sep. 15:00
LFC - S. Bucharest 16.sep. 19:05
Man Utd. - LFC 19.sep. 12:30
Leikur Úrslit
LFC - West Brom 1 - 0
Trabzonspor - LFC 1 - 2
Man City - LFC 3 - 0

Vefkönnun

Á Jamie Carragher skilið að fá ágóðaleik?

Skoða eldri kannanir

Samstarfsaðilar

  • Ölgerðin
  • Jói Útherji knattspyrnuverslun
  • Players Sport Cafe
  • VITA
  • Orkan
  • EJS hýsir vefinn okkar