| Sf. Gutt

Landsleikjafréttir

Í kvöld fóru fram fjölmargir vináttuleikir. Steven Gerrard fór fyrir enska landsliðinu eins og sannur fyrirliði og skoraði tvö glæsileg mörk í 2:1 sigri á Ungverjum.

Steven átti einn sinna bestu landsleikja og var yfirburðamaður í liði sínu. Glen Johnson var líka í byrjunarliðinu. Hann var sókndjarfur og þótti leika vel. Ungverjar komust yfir á 63. mínútu þegar Phil Jagielka stýrði fyrirgjöf í eigið mark. Reyndar sýndu sjónvarpsupptökur að boltinn fór aldrei inn fyrir marklínuna því Michael Dawson kom boltanum frá áður en svo varð!

Enska liðið hefur lengið undir miklu ámæli eftir HM og allt stefndi í enn meiri skammir þegar Steven Gerrard tók til sinna ráða. Á 69. mínútu fékk Steven boltann rétt fyrir utan vítateiginn og þrykkti honum yfir markmann Ungverja sem átti enga möguleika. Glæsilegt mark. Fjórum mínútum seinna var fyrirliðinn enn á ferðinni. Hann fékk sendingu inn á vítateginn þar sem hann sneri þrjá varnarmenn af sér og pikkaði boltanum svo framhjá markmanninum. Magnað einstaklingsframtak og ekki síður glæsilegt mark. Þessi tvö færðu enska liðinu kærkominn sigur. Framganga Steven Gerrard í þessum leik lofar sannarlega góðu fyrir leiktíðina.
 
Daniel Agger var í liði frænda okkar þegar þeir gerðu 2:2 jafntefli við bronslið Þjóðverja í Danmörku. Danir rifu sig upp eftir að hafa lent 0:2 undir og náðu að jafna. Christian Poulsen fékk frí í þessum leik og líklega var hann í Liverpool!

Martin Skrtel lék með Slóvökum þegar þeir gerðu 1:1 jafntefli við Króata. 

Þeir Milan Jovanovic og Sotirios Kyrgiakos áttust við í Belgrad þar sem Serbar og Grikkir mættust. Soto og félagar fögnuðu sigri 0:1.

Robbie Keane fyrirliði Íra lék sinn 100. landsleik þegar Írar vígðu nýjan leikvang í Dublin. Honum tókst ekki að bæta við landsleikjamarkamet sitt og Argentínumenn, sem voru gestir kvöldsins, unnu 0:1. Javier Mascherano var fyrirliði Argentínu og Emiliano Insua var varamaður.

Wales vann Luxemburg 5:1 og skoraði Craig Bellamy, fyrrum leikmaður Liverpool, síðasta markið. Hann hefur verið orðaður við endurkomu til Liverpool í einhverjum fjölmiðlum síðustu daga.
 
Lucas Leiva var í liði Brasilíumanna í gærkvöldi sem unnu Bandaríkjamenn 0:2.

Heimsmeistar Spánverja fóru á fund Mexíkóa og gerðu 1:1 jafntefli. Enginn leikmaður Liverpool var með í þessari för.
 
Guðlaugur Victor Pálsson kom inn á sem varamaður í einum glæsilegasta landsliðssigri í sögu undir 21. árs landsliðs Íslands. Strákarnir gerðu sér lítið fyrir og unnu stórsigur 4:1 á Þjóðverjum á Kaplakrikavelli í Hafnarfirði.
 
Að lokum má geta þess að Martin Kelly lék sinn fyrsta leik með undir 21. árs landsliði Englands í gærkvöldi. Hann kom inn á sem varamaður og gerði sér lítið fyrir og skoraði þegar England vann Usbekistan 2:0 á Ashton Gate í Bristol. Martin skoraði með skalla af stuttu færi og sannarlega óskabyrjun hjá honum í þessum landsliðsflokki. Danny Rose, leikmaður Tottenham skoraði fyrra markið. Danny Wilson lék líka sinn fyrsta leik með þessum aldursflokki. Skotar gerðu 1:1 jafntefli við frændur okkar Svía.

Hér má sjá myndband af mörkunum sem Steven Gerrard skoraði.    

Hér má sjá myndir úr landsleikjum kvöldsins af vefsíðu BBC.
 
Hér má sjá svipmyndir úr 21. árs leik Englands og Usbekistan.

Þeir Jamie Carragher og Joe Cole voru ekki í enska landsliðinu. Joe var ekki valinn og Jamie er auðvitað hættur aftur og nú endanlega.





TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan