| Sf. Gutt

Daniel ekki á förum!

Einhverjir leikmenn Liverpool eru kannski á báðum áttum um þessar mundir um hvort þeir eiga að fara frá félaginu núna þegar Rafael Benítez er farinn. Daniel Agger, frændi okkar frá Danmörku, er ekki einn af þeim. Hann segist ætla sér að vera áfram hjá Liverpool.

,,Ég hef ekki hugsað mér að yfirgefa Liverpool. Samningur minn gildir í fjögur ár og ég ætla mér að vera hérna áfram hver svo sem verður framkvæmdastjóri. Ég vona skiljanlega að sá framkvæmdastjóri sem tekur við liðinu hafi trú á mér. En ég verð auðvitað að sýna hvað í mér býr og ég veit það vel."

,,Ég kann vel við Liverpool sem félag og mér líkar vel við borgina Liverpool. Ég sé enga ástæðu til að fara. Ég held að liðsfélagar mínir hugsi á sama veg. Það vita allir að Liverpool er stórt félag. En ég veit, eftir að hafa kynnst innviðum þess, að félagið er frábært."

Þá vitum við að Daniel Agger mun ekki yfirgefa skútuna. Að minnsta kosti vill hann vera áfram og er það vel. Hann bætist nú í hóp þeirra leikmanna sem hafa lýst því yfir að þeir vilji vera áfram hjá Liverpool. Þeir Jose Reina, Dirk Kuyt og Jamie Carragher hafa gert það síðustu vikurnar.
 
Daniel Agger er kominn í sumarfrí eftir að Danir féllu úr leik í Heimsmeistarakeppninni í gærkvöldi. Hann getur því farið að safna kröftum fyrir komandi leiktíð og ekki mun af veita. Daniel hefur átt erfitt síðustu árin vegna meiðsla en vonandi nær hann sér góðum í sumar.









TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan