| Sf. Gutt

Robbie Fowler skiptir um lið

Robbie Fowler hefur ákveðið að vera áfram í Ástralíu en hann hefur á hinn bóginn skipt um lið þar í landi. Robbie gerði upphaflega samning við North Queensland. Honum gekk vel með liðinu og skoraði nokkur mörk á sinni einu leiktíð með því.

Ekki alls fyrir löngu söðlaði Robbie um og gekk til liðs við Perth Glory. Nokkur önnur félög höfðu áhuga á að fá Robbie til liðs við sig en Perth varð fyrir valinu hjá honum.

Robbie sagði á dögunum, í viðtali, að hann væri byrjaður að undirbúa að starfa við þjálfun eftir að hann leggur skóna endanlega á hilluna. Hann sagði í viðtalinu að hann gæti vel hugsað sér að þjálfa hjá Liverpool fengi hann tækifæri til þess.










TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan