| Sf. Gutt
Robbie Fowler hefur ákveðið að vera áfram í Ástralíu en hann hefur á hinn bóginn skipt um lið þar í landi. Robbie gerði upphaflega samning við North Queensland. Honum gekk vel með liðinu og skoraði nokkur mörk á sinni einu leiktíð með því.
Ekki alls fyrir löngu söðlaði Robbie um og gekk til liðs við Perth Glory. Nokkur önnur félög höfðu áhuga á að fá Robbie til liðs við sig en Perth varð fyrir valinu hjá honum.
Robbie sagði á dögunum, í viðtali, að hann væri byrjaður að undirbúa að starfa við þjálfun eftir að hann leggur skóna endanlega á hilluna. Hann sagði í viðtalinu að hann gæti vel hugsað sér að þjálfa hjá Liverpool fengi hann tækifæri til þess.
TIL BAKA
Robbie Fowler skiptir um lið
Robbie Fowler hefur ákveðið að vera áfram í Ástralíu en hann hefur á hinn bóginn skipt um lið þar í landi. Robbie gerði upphaflega samning við North Queensland. Honum gekk vel með liðinu og skoraði nokkur mörk á sinni einu leiktíð með því. Ekki alls fyrir löngu söðlaði Robbie um og gekk til liðs við Perth Glory. Nokkur önnur félög höfðu áhuga á að fá Robbie til liðs við sig en Perth varð fyrir valinu hjá honum.
Robbie sagði á dögunum, í viðtali, að hann væri byrjaður að undirbúa að starfa við þjálfun eftir að hann leggur skóna endanlega á hilluna. Hann sagði í viðtalinu að hann gæti vel hugsað sér að þjálfa hjá Liverpool fengi hann tækifæri til þess.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

