| Sf. Gutt

Sotirios í gríska landsliðinu

Kyrgiakos (16) tollerar landsliðsþjálfarannSotirios Kyrgiakos hefur leikið vel í vörn Liverpool á leiktíðinni og staðið sig betur en margir áttu von á. Soto, eins og sá gríski er kallaður, líkar lífið í Liverpool vel og langar til að vera sem lengst hjá félaginu.

Soto hefur nú verið valinn í forvalshóp Grikkja fyrir Heimsmeistararkeppnina. Otto Rehhagel, landsliðþjálfari Grikkja, er búinn að velja 30 manna hóp sem verður svo minnkaður niður í 23. manna hóp fyrir 1. júní. Sá hópur fer til Suður Afríku.

Sotirios hefur spilað 20 leiki með Liverpool á þessu keppnistímabili og skorað eitt mark. Hann hefur leikið 56 landsleiki og verið fastamaður í liðinu síðustu misseri. 





 

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan