Liverpool gekk frá kaupunum á þessum gríska miðverði rétt eftir byrjun Úrvalsdeildarinnar þetta árið en liðið var í bráðri neyð með að koma miðverði í lið sitt í fyrstu tveimur leikjunum vegna meiðsla þriggja aðalvarnarmanna liðsins og að sjálfsögðu brottför Sami Hyypia frá félaginu.
Kyrgiakos hóf feril sinn með gríska liðinu Panathiakos, en þar hafði hann verið frá árinu 1999 og kom upp í gegnum unglingastarf félagsins. Á árunum 1999-2001 fór hann á lán til neðri deildarliðsins Agios Nikolaos, þar lék hann 56 leiki fyrir félagið.
Frammistaða hans hjá Agios Nikolaos þótti það góð að Panathiakos ákvað að kalla hann aftur heim úr láninu og varð hann fljótt þeirra allra sterkasti miðvörður. Hann átti góðan feril hjá Panathiakos og skaraði þá það einna helst upp úr að hann lék mikilvægt hlutverk í að gera liðið að deildar- og bikarmeistara sama árið.
Í janúar mánuði 2004 fékk hann fyrsta bragðið af breskri knattspyrnu þegar hann var lánaður til skoska liðsins Rangers og var sá lánssamningur út það tímabil. Á því tímabili varð hann deildar- og bikarmeistari með Rangers en hann skoraði einmitt tvö mörk í bikarúrslitaleiknum.
Eftir tímabilið vildi Rangers fá hann aftur í sínar raðir og þá ekki sem tímabundinn leikmenn. Hann náði hins vegar ekki samkomulagi við Rangers í fyrstu og var í viðræðum við Everton, Schalke og Portsmouth en ákvað svo loks að halda áfram í herbúðum Rangers. Í lok tímabilsins rann samningur hans við Rangers út og hélt hann þá á önnur mið.
Hann samdi svo við þýska liðið Eintracht frá Frankfurt þar sem hann var í tvö ár og var mjög vinsæll á meðal stuðningsmanna liðsins. Hann átti stóran þátt í því að halda liðinu frá falli á fyrri leiktíðinni en átti einnig stóran þátt í velgengi liðsins á seinni leiktíðinni þegar liðið endaði í níunda sæti. Hann framlengdi ekki samning sinn við þýska liðið og hélt aftur til heimalandsins.
Síðasta sumar gekk hann í raðir AEK og gerði nýverið fjögurra ára samning við félagið en þegar Liverpool gerði tilboð í hann þá þurfti hann að fara á bak orða sinna sem hann hafði gefið stuðningsmönnum AEK þegar hann sagðist ætla að vera þar í fjögur ár í það minnsta, tilboð frá stóru félagi eins og Liverpool var einfaldlega of gott til að hafna.
Hann greindi frá því á heimasíðu sinni að hann væri að yfirgefa AEK til að ganga í raðir Liverpool, í raun heilum dag áður en nokkuð heyrðist af hálfu Liverpool.
Hann hefur verið fastamaður í liði Grikkja og verið einn af fyrstu kostum þjálfarans í landsliðshópinn en hann hefur leikið fimmtíu leiki fyrir Grikki en var því miður ekki með á Evrópumótinu árið 2004 þegar Grikkir komu á óvart og urðu Evrópumeistarar, hann missti þá af mótinu vegna meiðsla.
Leikmaðurinn kemur með mikla reynslu í lið Liverpool en hann hefur einmitt leikið í skosku-, grísku-, þýsku- og Meistaradeildinni. Hann er hávaxinn og sterkur miðvörður en hans helsti styrkleiki er skallatækni hans í föstum leikatriðum.