| Sf. Gutt
Liverpool hefur gengið slaklega á þessu keppnistímabili eins og allir vita. Ýmsir telja að þetta slaka gengi liðsins komi til með að valda því að bestu leikmenn liðsins muni vilja yfirgefa svæðið. Fernando Torres vill samt sem áður, að eigin sögn, vera áfram hjá Liverpool!
"Ég vil vera hjá Liverpool og á Englandi. Ég á enn þrjú ár eftir af samningnum mínum. Ég hef enn trú á því að við náum fjórða sætinu en það er ekki aðalatriðið fyrir mig að komast í Meistaradeildina. Það mikilvægasta fyrir félagið er að reyna að kaupa sterkari leikmenn sem geta gert liðshópinn sterkari. Á næsta keppnistímabili viljum við vera í baráttu um Úrvalsdeildartitilinn og eins í Meistaradeildinni eða þá Evrópudeildinni. En ef það á að geta gerst verðum við að kaupa nýja leikmenn."
Þessi orð Fernando Torres birtust á vefsíðu hans á núna á dögunum. Þau eru nokkuð samhljóða því sem Fernando sagði í viðtali við spænska blaðið AS ekki alls fyrir löngu. Það ber allt að sama brunni. Fernando Torres vill vera áfram hjá Liverpool.
Hér má lesa um það hvernig Fernando lýsir ánægju sinni með Liverpool borg og veru sína þar.
Hér má skoða vefsíðu Fernando Torres.
TIL BAKA
Ég vil vera hjá Liverpool!
Liverpool hefur gengið slaklega á þessu keppnistímabili eins og allir vita. Ýmsir telja að þetta slaka gengi liðsins komi til með að valda því að bestu leikmenn liðsins muni vilja yfirgefa svæðið. Fernando Torres vill samt sem áður, að eigin sögn, vera áfram hjá Liverpool! "Ég vil vera hjá Liverpool og á Englandi. Ég á enn þrjú ár eftir af samningnum mínum. Ég hef enn trú á því að við náum fjórða sætinu en það er ekki aðalatriðið fyrir mig að komast í Meistaradeildina. Það mikilvægasta fyrir félagið er að reyna að kaupa sterkari leikmenn sem geta gert liðshópinn sterkari. Á næsta keppnistímabili viljum við vera í baráttu um Úrvalsdeildartitilinn og eins í Meistaradeildinni eða þá Evrópudeildinni. En ef það á að geta gerst verðum við að kaupa nýja leikmenn."
Þessi orð Fernando Torres birtust á vefsíðu hans á núna á dögunum. Þau eru nokkuð samhljóða því sem Fernando sagði í viðtali við spænska blaðið AS ekki alls fyrir löngu. Það ber allt að sama brunni. Fernando Torres vill vera áfram hjá Liverpool.
Hér má lesa um það hvernig Fernando lýsir ánægju sinni með Liverpool borg og veru sína þar.
Hér má skoða vefsíðu Fernando Torres.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

