L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
17.03.2010 22:03
|
Sf. Gutt
Steven fær ekki refsingu
Einhverjir voru að vona að Steven Gerrard yrði settur í skammarkrókinn eftir leik Liverpool og Portsmouth. Þeim hinum sömu verður ekki að ósk sinni hvað þetta varðar og Steven fær ekki leikbann.
Á 73. mínútu, leiks Liverpool og Portsmouth, hlupu þeir Steven Gerrard og Michael Brown á eftir boltanum upp að vítateig Portsmouth. Báðir féllu en dómarinn dæmdi aukaspyrnu á Steven. Í endursýningu virtist mörgum að Steven setti handlegginn viljandi í hnakkann á Michael. Dómarinn taldi Steven ekki hafa gert það og að minnsta kosti ekki viljandi enda fékk fyrirliðinn ekki spjald.
Rafael Benítez skipti Steven strax af velli eftir þetta atvik. Eftir leikinn sagði Rafael aðspurður hafa gert það til að hvíla Steven og það hefði verið ákveðið fyrir leikinn að taka hann, Glen Johnson og Fernando Torres af velli, fyrir leikslok, til að hvíla þá.
Einhverjir vildu að Steven fengi
refsingu
eftir leik Liverpool og Wigan í síðustu viku. Ekkert var gert í því máli frekar en þessu. Hver og einn verður að móta sína skoðun á því hvort fyrirliðinn hafi átt skilið refsingu fyrir þessi atvik annað eða bæði.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir