| Sf. Gutt
Á dögunum var lýst kjöri á "Íþróttapersónuleika Merseyside-svæðisins" fyrir árið 2009. Í raun er þetta mesta viðurkenning sem hægt er að fá í Liverpoolborg á sviði íþrótta. Valið er ekki bundið við afreksmenn í knattspyrnu þótt oftar en ekki verði þeir fyrir valinu. Það eru lesendur dagblaðsins Liverpool Echo sem kjósa ár hvert.
Þetta var í þrítugasta og áttunda skipti sem kjörið fer fram. Howard Kendall, þá fyrirliði Everton, var sá fyrsti sem var kjörinn árið 1972. Árið eftir var Ian Callaghan fyrir valinu. Eftirtaldir leikmenn og framkvæmdastjórar Liverpool hafa verið valdir: Ian Callaghan, Kevin Keegan (tvisvar), Ray Clemence, Kenny Dalglish (tvisvar), Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen (1998), Steven Gerrard (2000), Gerard Houllier (2002), Jamie Carragher (2005), Rafael Benítez (2006) og Fernando Torres (2008). Fernando hafði þetta að segja þegar hann tók við viðurkenningu sinni annað árið í röð.
,,Ég er virkilega stoltur og þessi viðurkenning er mér mikils virði. Þetta er annað árið sem ég fæ viðurkenninguna og ég verð að þakka fyrir mig. Það var mjög merkur áfangi að ná að skora 50 mörk fyrir félagið. Það er ekki það sama að slá met hér hjá þessu félagi og öðrum vegna þess að þetta félag á eina glæstustu sögu knattspyrnufélaga í heiminum. Liverpool hefur átt frábæra sóknarmenn í gegnum árin og þess vegna er það mér mikils virði að hafa skákað þeim."
,,Fólk hefur sýnt mér vinsemd frá fyrsta degi mínum hér og mér líður eins og heima hér. Ég get farið um alla borgina og hvar sem ég kem er talað vingjarnlega til mín. Mér semur líka vel við stuðningsmenn Everton. Þetta kom mér á óvart því í Madríd er gríðarlega mikill áhugi á knattspyrnu og stuðningsmenn Real Madrid komu ekkert sérstaklega vel fram við mig. Mér kom það þess vegna mjög á óvart að ég gæti spjallað við stuðningsmenn Everton um alla skapaða hluti. Þeir bera virðingu fyrir mér og ég virði þá."
Eins og áður sagði var þetta annað árið í röð sem Fernando fékk þessa viðurkenningu. Það að sami maður fái viðurkenninguna tvö ár í röð hefur ekki gerst frá því Kenny Dalglish afrekaði það árin 1979 og 1980.
Höfðinginn Kevin Keegan fékk hin svokölluðu Bill Shankly minningarverðlaunin. Þau eru vanalega veitt einhverjum fyrrum leikmanni Liverpool sem hefur lagt skóna á hilluna.
Hér er viðtal við Fernando Torres sem tekið var þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
Hér er viðtal við Kevin Keegan sem tekið var þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
Hér eru myndir frá samkomunni.
TIL BAKA
Fernando Torres heiðraður
Á dögunum var lýst kjöri á "Íþróttapersónuleika Merseyside-svæðisins" fyrir árið 2009. Í raun er þetta mesta viðurkenning sem hægt er að fá í Liverpoolborg á sviði íþrótta. Valið er ekki bundið við afreksmenn í knattspyrnu þótt oftar en ekki verði þeir fyrir valinu. Það eru lesendur dagblaðsins Liverpool Echo sem kjósa ár hvert. Þetta var í þrítugasta og áttunda skipti sem kjörið fer fram. Howard Kendall, þá fyrirliði Everton, var sá fyrsti sem var kjörinn árið 1972. Árið eftir var Ian Callaghan fyrir valinu. Eftirtaldir leikmenn og framkvæmdastjórar Liverpool hafa verið valdir: Ian Callaghan, Kevin Keegan (tvisvar), Ray Clemence, Kenny Dalglish (tvisvar), Bruce Grobbelaar, Ian Rush, John Barnes, Robbie Fowler, Steve McManaman, Michael Owen (1998), Steven Gerrard (2000), Gerard Houllier (2002), Jamie Carragher (2005), Rafael Benítez (2006) og Fernando Torres (2008). Fernando hafði þetta að segja þegar hann tók við viðurkenningu sinni annað árið í röð.
,,Ég er virkilega stoltur og þessi viðurkenning er mér mikils virði. Þetta er annað árið sem ég fæ viðurkenninguna og ég verð að þakka fyrir mig. Það var mjög merkur áfangi að ná að skora 50 mörk fyrir félagið. Það er ekki það sama að slá met hér hjá þessu félagi og öðrum vegna þess að þetta félag á eina glæstustu sögu knattspyrnufélaga í heiminum. Liverpool hefur átt frábæra sóknarmenn í gegnum árin og þess vegna er það mér mikils virði að hafa skákað þeim."
,,Fólk hefur sýnt mér vinsemd frá fyrsta degi mínum hér og mér líður eins og heima hér. Ég get farið um alla borgina og hvar sem ég kem er talað vingjarnlega til mín. Mér semur líka vel við stuðningsmenn Everton. Þetta kom mér á óvart því í Madríd er gríðarlega mikill áhugi á knattspyrnu og stuðningsmenn Real Madrid komu ekkert sérstaklega vel fram við mig. Mér kom það þess vegna mjög á óvart að ég gæti spjallað við stuðningsmenn Everton um alla skapaða hluti. Þeir bera virðingu fyrir mér og ég virði þá."
Eins og áður sagði var þetta annað árið í röð sem Fernando fékk þessa viðurkenningu. Það að sami maður fái viðurkenninguna tvö ár í röð hefur ekki gerst frá því Kenny Dalglish afrekaði það árin 1979 og 1980.
Höfðinginn Kevin Keegan fékk hin svokölluðu Bill Shankly minningarverðlaunin. Þau eru vanalega veitt einhverjum fyrrum leikmanni Liverpool sem hefur lagt skóna á hilluna.
Hér er viðtal við Fernando Torres sem tekið var þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
Hér er viðtal við Kevin Keegan sem tekið var þegar hann tók við viðurkenningu sinni.
Hér eru myndir frá samkomunni.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

