Guðlaugur Victor svarar fyrir sig!
Rauði herinn, tímarit Liverpool klúbbsins á Íslandi, er að koma út og mun fljótlega berast í hendur félaga í klúbbnum. Í blaðinu núna má finna skemmtilega nærmynd af Guðlaugi Victori Pálssyni. Hér að neðan er hluti af nærmyndinni en til að sjá hana alla verður þú að ganga í Liverpool klúbbinn. Þá færð þú Rauða herinn með öllu því góða efni sem í honum er. Í nýjasta tölublaðinu er ítarlegt viðtal við Kristján Gauta Emilsson félaga Guðlaugs hjá Liverpool. Maður árins 2009 er kynntur og margt annað fróðlegt er að finna í blaðinu.
Nafn: Guðlaugur Victor Pálsson.
Fæðingardagur: 30. apríl 1991.
Fæðingarstaður: Reykjavík.
Fyrrum félög: Fylkir og AGF Aarhus.
Titlar: Borgarmeistari Liverpool 2009.
Landsleikir: Undir 21. árs tveir leikir, undir 19 ára þrír leikir, undir 18 ára þrír leikir og undir 17 ára sjö leikir.
Hver er hápunktur ferils þíns? Það var þegar ég gekk til liðs við Liverpool. Það er alveg ótrúlegt að hafa komist frá litlu félagi á Íslandi og til stærsta félags í heimi á tveimur árum. Þetta er eiginlega eins og draumur.
Hver er versta stund ferilsins? Ég var í tapliði í úrslitaleik þegar ég spilaði heima. Fyrir utan að þola tap þá skoraði ég sjálfsmark í leiknum. Þetta var ekki góður dagur!
Hvaða leikmaður er sá besti sem þú hefur spilað með? Jay Spearing. Hann er alltaf að tala inni á vellinum og hann er mjög ósérhlífin. Hann er frábær leikmaður og ég tel að hann eigi bjarta framtíð fyrir sér hjá félaginu.
Hvaða leikmaður í varaliðinu eyðir mestum tíma fyrir framan spegilinn? Krisztian Nemeth er alltaf að laga hárið á sér.
Hvaða leikmaður hefur versta fatasmekkinn? Því miður þá held ég að ég geti ekki nefnt neinn einn því allir gera sér far um að líta vel út.
Hver er besti vinur þinn í liðinu? Ég er mikið með dönsku strákunum Nikola Saric og Martin Hansen. Mér finnst líka gaman að vera með Vincent Weijl.
Hver er besti leikmaður sem þú hefur spilað á móti? Fabio da Silva eða Danny Welbeck. Ég lék á móti þeim í varaliðsleik gegn Manchester United.
Á hvaða leikvangi myndir þú vilja spila? Ég held Nou Camp. Þetta er geysilega magnaður leikvangur og ég held að það væri gaman að spila þar einhvern tíma á ferlinum.
Þú spilar á miðjunni en getur þú spilað einhverjar aðrar stöður? Ég spilaði alltaf í sókninni þegar ég var yngri og svo spilaði ég líka nokkra leiki á hægri kantinum. Það var ekki fyrr en ég fór til Aarhus að ég var settur í varnarhlutverk. Ég hef alveg trú á því að ég geti skorað en það gerist nú ekki mikið í þeim efnum.
Hvaða fótboltatreyju eignaðist þú fyrst? Það var íslenska landsliðstreyjan.
Hverjir hafa haft mest áhrif á feril þinn? Fjölskyldan mín. Mamma og litla systir mín hafa veitt mér mikinn stuðning. Þar fluttu með mér frá Íslandi og til Danmerkur. Svo fluttu þær frá Danmörku og hingað.
Á forsíðu Liverpool.is er hægt að finna leið til að ganga í Liverpool klúbbinn á Íslandi.
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?


