| Grétar Magnússon
Grikkir tryggðu sér í gærkvöldi sæti á HM í knattspyrnu næsta sumar á kostnað Úkraínumanna. Sotirios Kyrgiakos spilaði allan leikinn fyrir Grikki. Nokkrir aðrir leikmenn félagsins spiluðu einnig með landsliðum sínum.
Grikkir áttu erfiðan leik fyrir höndum í Úkraínu eftir að hafa gert markalaust jafntefli í Grikklandi um helgina. Eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik og var það Dimitrios Salpigidis sem skoraði markið. Fögnuður Grikkja var ósvikinn í leikslok og Kyrgiakos hlýtur að snúa aftur á Anfield með bros á vör. Grikkir komust síðast á HM árið 1994.
Robbie Keane fyrrum leikmaður Liverpool skoraði fyrir Íra í París og tryggði þeim 1:0 sigur. Frakkar unnu fyrri leikinn 1:0 og því varð að framlengja til að útkljá hvor þjóðin kæmist áfram. William Gallas skoraði í framlengingunni og það mark kom frönskum áfram. Markið var umdeilt svo ekki sé meira sagt því Thierry Henry lagði boltann fyrir sig með hendi áður en hann sendi fyrir markið á William. Írar sátu því eftir með sárt ennið og reiði þeirra eftir leik var vel skiljanleg.
Dirk Kuyt spilaði í 62 mínútur með Hollendingum er þeir gerðu markalaust jafntefli við Paraguay í Eindhoven. Ryan Babel spilaði allan síðari hálfleikinn en hann kom inná fyrir Eljero Elia sem einmitt hefur nýlega verið orðaður við Liverpool.
Pepe Reina spilaði einnig allan seinni hálfleikinn er Spánverjar unnu stórsigur á Austurríki í Vín, 5-1.
Martin Skrtel spilaði svo allan leikinn fyrir Slóvakíu er þeir töpuðu á heimavelli gegn Chile 1-2, leikurinn fór fram á þriðjudagskvöldið.
Fleiri leikmenn voru ekki að spila með landsliðum sínum og nú undirbýr liðið sig af kappi fyrir gríðarlega mikilvægan leik gegn Manchester City á laugardaginn.
TIL BAKA
Kyrgiakos á HM
Grikkir tryggðu sér í gærkvöldi sæti á HM í knattspyrnu næsta sumar á kostnað Úkraínumanna. Sotirios Kyrgiakos spilaði allan leikinn fyrir Grikki. Nokkrir aðrir leikmenn félagsins spiluðu einnig með landsliðum sínum.Grikkir áttu erfiðan leik fyrir höndum í Úkraínu eftir að hafa gert markalaust jafntefli í Grikklandi um helgina. Eina mark leiksins kom í fyrri hálfleik og var það Dimitrios Salpigidis sem skoraði markið. Fögnuður Grikkja var ósvikinn í leikslok og Kyrgiakos hlýtur að snúa aftur á Anfield með bros á vör. Grikkir komust síðast á HM árið 1994.
Robbie Keane fyrrum leikmaður Liverpool skoraði fyrir Íra í París og tryggði þeim 1:0 sigur. Frakkar unnu fyrri leikinn 1:0 og því varð að framlengja til að útkljá hvor þjóðin kæmist áfram. William Gallas skoraði í framlengingunni og það mark kom frönskum áfram. Markið var umdeilt svo ekki sé meira sagt því Thierry Henry lagði boltann fyrir sig með hendi áður en hann sendi fyrir markið á William. Írar sátu því eftir með sárt ennið og reiði þeirra eftir leik var vel skiljanleg.
Dirk Kuyt spilaði í 62 mínútur með Hollendingum er þeir gerðu markalaust jafntefli við Paraguay í Eindhoven. Ryan Babel spilaði allan síðari hálfleikinn en hann kom inná fyrir Eljero Elia sem einmitt hefur nýlega verið orðaður við Liverpool.
Pepe Reina spilaði einnig allan seinni hálfleikinn er Spánverjar unnu stórsigur á Austurríki í Vín, 5-1.
Martin Skrtel spilaði svo allan leikinn fyrir Slóvakíu er þeir töpuðu á heimavelli gegn Chile 1-2, leikurinn fór fram á þriðjudagskvöldið.
Fleiri leikmenn voru ekki að spila með landsliðum sínum og nú undirbýr liðið sig af kappi fyrir gríðarlega mikilvægan leik gegn Manchester City á laugardaginn.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

