| Sf. Gutt
Það styttist í að Steven Gerrard spili sinn 500. leik með Liverpool. Hann segist mjög stoltur af því að nálgast þann áfanga en næsti leikur hans með Liverpool verður númer 495. Steven vill þó miklu fremur bæta í verðlaunasafn sitt en að ná einhverjum áföngum í leikjafjölda.
"Auðvitað er ég mjög stoltur yfir því að vera að nálgast 500 leiki með Liverpool. Það var draumur minn, þegar ég var að alast upp, að spila með Liverpool. Þegar ég var lítill strákur og var að sparka bolta hefði ég verið hæst ánægður með að ná að spila einn leik fyrir félagið. Það hefur því mikla þýðingu fyrir mig, fjölskyldu mína og vini að ná 500 leikjum."
"Það er magnað að vera kominn í hóp með Kenny Dalglish og öðrum sem hafa leikið svo marga leiki. Kenny er goðsögn og einn besti leikmaður allra tíma. Það er því sérlega gaman að hafa spilað álíka marga leiki og hann. En Kenny vann deildartitla, Evrópubikara og alls konar aðra titla á ferli sínum með Liverpool og ég vil það líka. Ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir liðið. Ég vil ekki bara spila leiki. Ég vil vera hluti af liði Liverpool sem vinnur titla á hverju einasta ári."
Liverpool hefur ekki unnið titil frá árinu 2006 þegar liðið vann F.A. bikarinn og Samfélagsskjöldinn. Þrjár leiktíðir eru liðnar frá þeim tíma og titlar komast vonandi í hús ekki seinna en næsta vor. Það er öruggt að Steven Gerrard mun leggja sig allan fram til að svo verði.
TIL BAKA
Steven vill titla!
Það styttist í að Steven Gerrard spili sinn 500. leik með Liverpool. Hann segist mjög stoltur af því að nálgast þann áfanga en næsti leikur hans með Liverpool verður númer 495. Steven vill þó miklu fremur bæta í verðlaunasafn sitt en að ná einhverjum áföngum í leikjafjölda."Auðvitað er ég mjög stoltur yfir því að vera að nálgast 500 leiki með Liverpool. Það var draumur minn, þegar ég var að alast upp, að spila með Liverpool. Þegar ég var lítill strákur og var að sparka bolta hefði ég verið hæst ánægður með að ná að spila einn leik fyrir félagið. Það hefur því mikla þýðingu fyrir mig, fjölskyldu mína og vini að ná 500 leikjum."
"Það er magnað að vera kominn í hóp með Kenny Dalglish og öðrum sem hafa leikið svo marga leiki. Kenny er goðsögn og einn besti leikmaður allra tíma. Það er því sérlega gaman að hafa spilað álíka marga leiki og hann. En Kenny vann deildartitla, Evrópubikara og alls konar aðra titla á ferli sínum með Liverpool og ég vil það líka. Ekki bara fyrir mig heldur líka fyrir liðið. Ég vil ekki bara spila leiki. Ég vil vera hluti af liði Liverpool sem vinnur titla á hverju einasta ári."
Liverpool hefur ekki unnið titil frá árinu 2006 þegar liðið vann F.A. bikarinn og Samfélagsskjöldinn. Þrjár leiktíðir eru liðnar frá þeim tíma og titlar komast vonandi í hús ekki seinna en næsta vor. Það er öruggt að Steven Gerrard mun leggja sig allan fram til að svo verði.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

