| Ólafur Haukur Tómasson

Steven Gerrard tjáir sig um ákæruna

Fyrir réttu ári vann Liverpool Newcastle United 5:1 á St James Park. Liverpool treysti stöðu sína í efsta sæti deildarinnar og lék frábærlega í leiknum.

Þá um kvöldið fór Steven Gerrard, sem átti stórleik og skoraði tvö mörk, að fagna sigri með nokkum félögum sínum. Skemmtunin fór úr böndunum og Steven og félagar fengu á sig ákærur sem þeir urðu að svara fyrir í rétti. Það var ekki fyrr en í júlí að réttarhöldunum lauk og var Steven sýknaður af öllum ákærum.

Hér að neðan er brot úr viðtali við Steven Gerrard sem birtist í Daily Mail. Viðtalið í heild sinni mun birtast í Rauða hernum sem nú er að koma út. Til að gera lesið það er hægt að ganga í Liverpool klúbbinn á Íslandi og fá þannig Rauða herinn!

Steven Gerrard hefur aldrei komið fram í fjölmiðlum áður til að greina frá tilfinningum sínum og líðan yfir ákærunni sem hann var sýknaður af í sumar. Ákæruna fékk hann á sig eftir að plötusnúður á bar hafði kært hann fyrir líkamsárás. Réttarhöldin voru löng og erfið. Alls liðu átta mánuðir frá því að atburðurinn gerðist og þar til að niðurstöðu úr málinu hafði verið náð. Þó svo að jákvæð niðurstaða hafi náðst úr málinu þá setti þessi leiðinda lífsreynsla mark sitt á fyrirliðann.

Í viðtali við Martin Samuel, fyrrum íþróttablaðamanns The Times og núverandi blaðamanns Daily Mail, lýsti Steven tilfinningum sínum varðandi réttarhöldin ásamt öðrum málum. Meðal annars hversu mikla ánægju hann hefur af því að æfa undir stjórn Fabio Capello.

"Ég er leikmaður sem vill hafa allt sem snyrtilegast. Ég var alltaf mjög ákveðinn á því hvernig knattspyrnumenn ættu að haga sér. Ég lít á það sem mikilvægan hlut. Það er ekki bara til að líta vel út eða gera sér eitthvað upp. Ég veit að það eru mörg börn sem líta upp til mín, ég fæ oft fullt af aðdáendabréfum frá þeim og á þessum tíma hélt ég að ég væri að bregðast þeim og fullt af öðru fólki, bara með því að vera í þessari stöðu.

Ég hafði áhyggjur af því að fólk myndi ekki hugsa eins jákvætt til mín og því var þessi niðurstaða mjög mikilvæg. Í réttarhöldunum á meðan ákærandinn var að segja sitt þá voru nokkrir dagar þar sem ég las þessar fréttir og hugsaði með mér "Ég vona að fólki haldi ekki að ég sé svona."

Steven mátti ekki ræða um atvikið sem átti sér stað þegar hann kýldi til Marcus McGee á skemmtistað í Liverpool og mátti hann heldur ekki ræða um þær ásakanir sem Marcus bar á hann. Hann segir þó að í gegnum þessi málaferli hafi hann reynt að hafa hugann við knattspyrnuna en það er ekki auðvelt fyrir hann að reyna að útiloka þennan kafla úr lífi sínu.


 
"Réttarhöldin breyttu mér. Ég varð að læra af þeim. Læra af því að vera á röngum stað á röngum tíma. Á hvaða tímum ég er úti og hvert ég fer. Ég mun vera varkárari í framtíðinni hvað þetta varðar. Héðan í frá ef við vinnum 5:1, ef ég skora tvö mörk og við förum á topp deildarinnar þá mun ég reyna að fagna því ekki á bar með félögum mínum. Ég mun fá mér góða máltíð og vera kominn heim fyrir hálf ellefu. Við fáum vel borgað og það verður að færar einhverjar fórnir af okkar hálfu.

Í gegnum öll réttarhöldin sagði ég við sjálfan mig í sífellu að sama hvað myndi gerast þá myndi ég passa upp á að lenda aldrei í réttarsal aftur. Þetta var ekki þægilegur staður til að vera á. Öll þessi reynsla var ógnvekjandi og ögrandi. Ég hef aldrei gengið í gegnum neitt þessu líkt. Ég hugsaði í sífellu til liðsfélaga minna í Tælandi að spila fótbolta og hvað ég var svo óralangt frá þeim stað sem ég hefði átt að vera á.

Að niðurstöðunni undanskyldri þá var ekki ein mínúta af þessum tíma sem var ánægjuleg, ekki eitt augnablik sem gerði mig stoltann. Ég yðrast þessarar aðstöðu sem ég lenti í og ég yðrast þess að hafa ekki farið heim þegar ég hefði getað gert það. Ég verð að taka því að sumir munu alltaf líta á þetta sem hálfvitaskap af minni hálfu þó svo að ég hafi hlotið þær niðurstöður sem mér fannst ég eiga skilið."

Aðstæðurnar sem Steven lenti í voru mjög óvenjulegar og í raun voru það sláandi fréttir þegar allt fregnaðist. Þá sérstaklega fyrir marga af þeim sem þekkja til leikmannsins persónulega. Það eru nokkrir leikmenn sem hafa verið í slíkum vandræðum vegna ofbeldisfullrar hegðunnar og sumar af þeim fréttum hafa ekki komið á óvart. En það kom frekar á óvart að Steven skyldi hafa lent í eldlínunni út af svona máli.

Viðtalið er mun lengra og í því ræðir Steven líka um knattspyrnuna frá ýmsum hliðum. Hann segir frá samstarfi sínu við þá Rafael Benítez og Fabio Capello og mörgu fleiru. Þá er bara að koma því þannig fyrir að hægt sé að fá Rauða herinn í hús!



TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan