| SSteinn

Rauði Herinn og skírteini í næstu viku

Í næstu viku munu meðlimir í Liverpoolklúbbnum á Íslandi fá fyrstu sendingu tímabilsins senda í pósti til sín.  Nýjasta eintak Rauða Hersins, ásamt glænýju og glæsilegu skírteini, mun renna inn um bréfalúgur félagsmanna.  Við viljum hvetja alla þá sem eiga eftir að ganga frá greiðslum, að gera slíkt hið fyrsta, vilji menn vera með frá byrjun og njóta góðs af öllum pakkanum sem í boði er.  

Í dag eru yfir 1.600 búnir að greiða árgjaldið fyrir þetta tímabil og eru eflaust margir sem hafa verið á leiðinni með að klára sín mál, en einhverra hluta vegna ekki látið verða að því.

Allar nánari upplýsingar um hvernig menn geta skráð sig og greitt í klúbbinn er að finna hérna.


TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan