L.F.C - Liverpool klúbburinn á Íslandi
Beint á efnisyfirlit
Forsíða
Frétt
29.08.2009 00:08
|
Sf. Gutt
Steven getur betur
Steven Gerrard hefur ekki náð sér á strik, frekar en flestir aðrir leikmenn Liverpool, það sem af er leiktíðar. Rafael Benítez vill að hann og aðrir leikmenn liðsins taki sig á og fari að spila betur.
"Við höfum séð Steven spila virkilega vel í nokkuð langan tíma. Hann er einn af lykilmönnum liðsins og hann verður það áfram. Hann veit vel að hann er nú búinn að spila nokkra leiki sem hann hefur ekki verið upp á sitt besta í. Það tekst eftir því þegar hann spilar ekki vel vegna þess hversu vel hann spilar venjulega. Ég veit að hann er nú tilbúinn í slaginn. Leikmennirnir eru ekki heimskir. Þeir gera sér grein fyrir því þegar þeir eru ekki að spila eins vel og þeir geta. Allir hérna vita að við verðum að bæta okkur."
Liverpool hefur nú spilað þrjá leiki í deildinni og tapað tveimur af þeim. Í dag mætir liðið Bolton á útivelli og Rafael vill að menn sínir rífi sig upp og sýni góðan leik.
"Það má ljóst vera að allir þurfa að bæta sig. Við erum búnir að fara vel yfir málið og talað við alla leikmennina. Þeir hafa tekið vel í það sem við höfum haft fram að færa og hafa æft vel alla vikuna því það er eins leiðin til að breyta gangi mála. Núna verða þeir að sýna hvað í þeim býr. Liðið vill sýna að það sé nógu gott. Ég veit að við getum bætt okkur og ég get fullvissað alla um að leikmennirnir munu berjast eins og ljón frá fyrstu mínútu."
Nú er að vona að liðið okkar hrökkvi í gang í dag því ekki dugir að halda áfram í þessu fari ætli það sér að berjast um Englandsmeistaratitilinn.
Til baka
Þú ert hér ...
Forsíða
»
Fréttir
Fréttir
Fréttageymslan
Fréttaveitur
Senda frétt
Prenta frétt
Senda á facebook
Sjá leikmann
Sjá leikskýrslu
Síðasta frétt
Næsta frétt
Samstarfsaðilar
Efnisyfirlit
Forsíða
Fréttir
Tímabilið 2011/2012
Spjallborðið
Klúbburinn
Liverpool FC
Annað efni
Aukaval
Skráðu þig í klúbbinn
Félagsgjöld
Fyrirspurnir
Í beinni
Liverpoolferðir