| Sf. Gutt
Marokkómaðurinn Nabil El Zhar ætlar að vera áfram hjá Liverpool og hefur framlengt samning sinn við félagið. Hann er nú samningsbundinn Liverpool til ársins 2012.
Nabil kom til Liverpool frá franska liðinu Saint Etienne í október 2006. Hann er fæddur í Frakklandi en foreldrar hans eru frá Marokkó og hann hefur leikið nokkra leiki með landsliði þess lands.
Nabil kom töluvert við sögu hjá Liverpool á síðasta keppnistímabili en þá lék hann 19 leiki. Alls hefur hann leikið 25 leiki með Liverpool og skorað eitt mark.
Nabil hefur oftast komið inn á sem varamaður í leikjum sínum og stundum náð að láta að sér kveða og átt þátt í mörkum. Rafael Benítez var oft ánægður með innkomur Marokómannsins og gaf honum viðurnefnið ,,Lukkugripurinn." Það hlýtur að vera gott fyrir Rafael að hafa ,,Lukkugripinn" með þegar nýtt keppnistímabil hefst seinna í sumar. Hann vill að minnsta kosti hafa hann vísan.
TIL BAKA
Nabil El Zhar verður áfram
Marokkómaðurinn Nabil El Zhar ætlar að vera áfram hjá Liverpool og hefur framlengt samning sinn við félagið. Hann er nú samningsbundinn Liverpool til ársins 2012. Nabil kom til Liverpool frá franska liðinu Saint Etienne í október 2006. Hann er fæddur í Frakklandi en foreldrar hans eru frá Marokkó og hann hefur leikið nokkra leiki með landsliði þess lands.
Nabil kom töluvert við sögu hjá Liverpool á síðasta keppnistímabili en þá lék hann 19 leiki. Alls hefur hann leikið 25 leiki með Liverpool og skorað eitt mark.
Nabil hefur oftast komið inn á sem varamaður í leikjum sínum og stundum náð að láta að sér kveða og átt þátt í mörkum. Rafael Benítez var oft ánægður með innkomur Marokómannsins og gaf honum viðurnefnið ,,Lukkugripurinn." Það hlýtur að vera gott fyrir Rafael að hafa ,,Lukkugripinn" með þegar nýtt keppnistímabil hefst seinna í sumar. Hann vill að minnsta kosti hafa hann vísan.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

