| Ólafur Haukur Tómasson
Kantmaðurinn efnilegi Nabil El Zhar tók þátt í nítján leikjum með aðalliði Liverpool á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í mörgum af dramatísku síðbúnu sigrum í byrjun síðustu leiktíðar. Hann varð í kjölfarið hálfger happagripur fyrir Rafael Benítez og nú vill El Zhar endurgjalda Benítez traustið sem hann lagði á hann og spila sinn þátt í baráttu Liverpool um Englandsmeistaratitilinn á næstu leiktíð.
"Ég verð að leggja hart að mér, bæta mig, sanna mig og leggja mitt af mörkum fyrir aðalliðið. Mér líður alltaf meir og meir eins og ég sé heima hjá félaginu. Ég hef fengið mikið meira sjálfstraust með því að koma meir og meir inn á. Nú verð ég að halda áfram, leggja hart að mér, reyna og leika fleiri leiki.
Maður verður að gleyma öllum stóru nöfnunum sem maður spilar með og reyna bara að sýna fólki hvað maður getur gert. Ég verð að halda áfram á þessari braut. Stjórinn sagði við mig að hann vildi gefa mér fleiri tækifæri í aðalliðinu, hann sagði mér að ég yrði að leggja hart að mér, hluta á ráðgjafir og grípa tækifærin þegar þau gefast.
Ég elska líka að spila fyrir Marokkó og ég vil spila stórt hlutverk þar. Ég á mikið eftir ógert og verð að halda mér á jörðinni en það var frábært að skora fyrir framan the Kop og nú lifi ég drauminn.
Ég hafði lesið allt um sögu Liverpool þegar ég var í Frakklandi, hvað það vann og hversu stórt nafn það er í heimsfótboltanum. Það er mjög þekkt félag í mörgum löndum. Utan frönsku félaganna halda margir með Liverpool fremur en einhverju öðru ensku liði vegna þess sem að Shankley og Paisley áorkuðu, þeir gáfu mörgum innblástur til þess að halda með Liverpool.
Það eru einnig margir franskir leikmenn sem hafa spilað í Englandi og látið að sér kveða. Félagið á marga stuðningsmenn í Marokkó og í allri Afríku."
Nokkrir af leikmönnum Liverpool snéru aftur til æfinga í gær eftir sumarfrí og var El Zhar einn þeirra sem hóf æfingar í gær. Hann segir að liðið stefni aftur á Englandsmeistaratitilinn og segir að liðið þurfi að finna leið til þess að breyta jafnteflisleikjum í sigurleiki ef að liðið ætlar að enda uppi með langþráðan Englandsmeistaratitil í maí næst komandi.
"Liverpool er topp lið og við vitum allir að við verðum að leggja hart að okkur. Allt liðið veit að þeir verða að spila vel og leggja hart að sér til að komast þangað og halda sér þar. Með því að vinna Manchester United og Chelsea og gera jafntefli við Arsenal sýnir það að við getum staðið okkur vel gegn hinum stóru liðunum. En við verðum að fara að vinna fleiri leiki gegn minni liðinum ef við viljum halda okkur í baráttunni um titilinn."
Nabil El Zhar skoraði sitt eina mark fyrir Liverpool til þessa þegar hann skoraði með glæsilegu skoti í leik gegn Cardiff City í Deildarbikarnum árið 2007. Hann var valinn næst besti leikmaður Heimsmeistaramóts undir 20 ára landsliða árið 2006 en þá var ekki minni leikmaður en Lionel Messi valinn besti leikmaðurinn. Miklar vonir eru bundnar við El Zhar af knattspyrnustjóranum Rafael Benítez og starfsliði hans.
TIL BAKA
El Zhar vill ólmur sanna sig
Kantmaðurinn efnilegi Nabil El Zhar tók þátt í nítján leikjum með aðalliði Liverpool á síðustu leiktíð og átti stóran þátt í mörgum af dramatísku síðbúnu sigrum í byrjun síðustu leiktíðar. Hann varð í kjölfarið hálfger happagripur fyrir Rafael Benítez og nú vill El Zhar endurgjalda Benítez traustið sem hann lagði á hann og spila sinn þátt í baráttu Liverpool um Englandsmeistaratitilinn á næstu leiktíð."Ég verð að leggja hart að mér, bæta mig, sanna mig og leggja mitt af mörkum fyrir aðalliðið. Mér líður alltaf meir og meir eins og ég sé heima hjá félaginu. Ég hef fengið mikið meira sjálfstraust með því að koma meir og meir inn á. Nú verð ég að halda áfram, leggja hart að mér, reyna og leika fleiri leiki.
Maður verður að gleyma öllum stóru nöfnunum sem maður spilar með og reyna bara að sýna fólki hvað maður getur gert. Ég verð að halda áfram á þessari braut. Stjórinn sagði við mig að hann vildi gefa mér fleiri tækifæri í aðalliðinu, hann sagði mér að ég yrði að leggja hart að mér, hluta á ráðgjafir og grípa tækifærin þegar þau gefast.
Ég elska líka að spila fyrir Marokkó og ég vil spila stórt hlutverk þar. Ég á mikið eftir ógert og verð að halda mér á jörðinni en það var frábært að skora fyrir framan the Kop og nú lifi ég drauminn.
Ég hafði lesið allt um sögu Liverpool þegar ég var í Frakklandi, hvað það vann og hversu stórt nafn það er í heimsfótboltanum. Það er mjög þekkt félag í mörgum löndum. Utan frönsku félaganna halda margir með Liverpool fremur en einhverju öðru ensku liði vegna þess sem að Shankley og Paisley áorkuðu, þeir gáfu mörgum innblástur til þess að halda með Liverpool.
Það eru einnig margir franskir leikmenn sem hafa spilað í Englandi og látið að sér kveða. Félagið á marga stuðningsmenn í Marokkó og í allri Afríku."
Nokkrir af leikmönnum Liverpool snéru aftur til æfinga í gær eftir sumarfrí og var El Zhar einn þeirra sem hóf æfingar í gær. Hann segir að liðið stefni aftur á Englandsmeistaratitilinn og segir að liðið þurfi að finna leið til þess að breyta jafnteflisleikjum í sigurleiki ef að liðið ætlar að enda uppi með langþráðan Englandsmeistaratitil í maí næst komandi.
"Liverpool er topp lið og við vitum allir að við verðum að leggja hart að okkur. Allt liðið veit að þeir verða að spila vel og leggja hart að sér til að komast þangað og halda sér þar. Með því að vinna Manchester United og Chelsea og gera jafntefli við Arsenal sýnir það að við getum staðið okkur vel gegn hinum stóru liðunum. En við verðum að fara að vinna fleiri leiki gegn minni liðinum ef við viljum halda okkur í baráttunni um titilinn."
Nabil El Zhar skoraði sitt eina mark fyrir Liverpool til þessa þegar hann skoraði með glæsilegu skoti í leik gegn Cardiff City í Deildarbikarnum árið 2007. Hann var valinn næst besti leikmaður Heimsmeistaramóts undir 20 ára landsliða árið 2006 en þá var ekki minni leikmaður en Lionel Messi valinn besti leikmaðurinn. Miklar vonir eru bundnar við El Zhar af knattspyrnustjóranum Rafael Benítez og starfsliði hans.
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

