| Sf. Gutt
Það var tilkynnt á hinni opinberu vefsíðu Liverpool F.C. í dag að David Moores hafi sagt sig úr stjórn félagsins. Fréttatilkynningin, á Liverpoolfc.tv, er svona. "Liverpool FC staðfestir í dag að David Moores hefur sagt sig úr stjórn félagsins. Herra Moores mun þó halda stöðu sinni sem Heiðursforseti félagsins til lífstíðar."
David Moores varð stjórnarformaður Liverpool F.C. árið 1991 þegar hann eignaðist ráðandi hlut í félaginu. Hann var stjórnarformaður þar þeir George Gillett og Tom Hicks keyptu félagið í mars árið 2007. Hann fékk þá sæti í stjórn félagsins og stöðu heiðursfélaga.
David mun hafa séð mikið eftir því að hafa selt þeim George og Tom Liverpool F.C. og kom það glögglega í ljós í viðtali sem hann veitti staðarblaðinu Echo í apríl á síðasta ári. Þá sagði hann meðal annars.
“Þetta veldur manni hjartasári og ég á varla orð til að lýsa því tjóni sem þetta veldur félaginu um þessar mundir. Sem stuðningsmaður sem elskar þetta félag þá er það alveg óásættanlegt hvernig þessi atgangur fer fram fyrir opnum tjöldum. Svona á þetta ekki að vera hjá þessu félagi. Þetta er til skammar og svona má ekki vinna að málum. Ég hef aldrei vitað annað eins og ég er alveg miður mín."
Hér er frétt um viðtalið sem birtist á Liverpool.is.
Þegar þessi frétt er lesin þarf ekki að koma á óvart að David Moores hafi hætt í stjórn Liverpool F.C. Svo er að sjá hvort brotthvarf hans úr stjórninni sé forleikur að einhverjum frekari hræringum hjá Liverpool Football Club!
TIL BAKA
David Moores hættir í stjórn Liverpool F.C.
Það var tilkynnt á hinni opinberu vefsíðu Liverpool F.C. í dag að David Moores hafi sagt sig úr stjórn félagsins. Fréttatilkynningin, á Liverpoolfc.tv, er svona. "Liverpool FC staðfestir í dag að David Moores hefur sagt sig úr stjórn félagsins. Herra Moores mun þó halda stöðu sinni sem Heiðursforseti félagsins til lífstíðar."David Moores varð stjórnarformaður Liverpool F.C. árið 1991 þegar hann eignaðist ráðandi hlut í félaginu. Hann var stjórnarformaður þar þeir George Gillett og Tom Hicks keyptu félagið í mars árið 2007. Hann fékk þá sæti í stjórn félagsins og stöðu heiðursfélaga.
David mun hafa séð mikið eftir því að hafa selt þeim George og Tom Liverpool F.C. og kom það glögglega í ljós í viðtali sem hann veitti staðarblaðinu Echo í apríl á síðasta ári. Þá sagði hann meðal annars.
“Þetta veldur manni hjartasári og ég á varla orð til að lýsa því tjóni sem þetta veldur félaginu um þessar mundir. Sem stuðningsmaður sem elskar þetta félag þá er það alveg óásættanlegt hvernig þessi atgangur fer fram fyrir opnum tjöldum. Svona á þetta ekki að vera hjá þessu félagi. Þetta er til skammar og svona má ekki vinna að málum. Ég hef aldrei vitað annað eins og ég er alveg miður mín."
Hér er frétt um viðtalið sem birtist á Liverpool.is.
Þegar þessi frétt er lesin þarf ekki að koma á óvart að David Moores hafi hætt í stjórn Liverpool F.C. Svo er að sjá hvort brotthvarf hans úr stjórninni sé forleikur að einhverjum frekari hræringum hjá Liverpool Football Club!
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

