| Sf. Gutt
Í gær var tilkynnt að Steven Gerrard hefði verið kjörinn Knattspyrnumaður ársins 2009. Rafael Benítez segir að hann gleðjist mjög fyrir hönd fyrirliða síns.
"Ég er virkilega ánægður fyrir hönd Steven. Þetta er sérlega vel af sér vikið hjá honum því hann var að keppa við marga góða leikmenn. Hann á geigvænlega mikið hrós skilið fyrir að vera kjörinn leikmaður ársins og kjör hans sýnir hversu miklu hann hefur áorkað. Hann er búinn að skora 23 mörk hingað til á leiktíðinni og það sýnir að hann hefur enn einu sinni átt frábæra leiktíð."
"Allir hér hjá félaginu eru mjög ánægðir með að hann skuli hafa hlotið þessi verðlaun. Þegar Steven frétti að hann hefði hlotið þessi verðlaun var það fyrsta sem hann sagði að hann vildi færa mér, starfsfólki félagsins og liðsfélögum sínum þakkir. Þetta voru mjög jákvæð viðbrögð hjá honum og sýna hversu mikill félagsmaður Steven er."
TIL BAKA
Rafa gleðst fyrir hönd Steven
Í gær var tilkynnt að Steven Gerrard hefði verið kjörinn Knattspyrnumaður ársins 2009. Rafael Benítez segir að hann gleðjist mjög fyrir hönd fyrirliða síns."Ég er virkilega ánægður fyrir hönd Steven. Þetta er sérlega vel af sér vikið hjá honum því hann var að keppa við marga góða leikmenn. Hann á geigvænlega mikið hrós skilið fyrir að vera kjörinn leikmaður ársins og kjör hans sýnir hversu miklu hann hefur áorkað. Hann er búinn að skora 23 mörk hingað til á leiktíðinni og það sýnir að hann hefur enn einu sinni átt frábæra leiktíð."
"Allir hér hjá félaginu eru mjög ánægðir með að hann skuli hafa hlotið þessi verðlaun. Þegar Steven frétti að hann hefði hlotið þessi verðlaun var það fyrsta sem hann sagði að hann vildi færa mér, starfsfólki félagsins og liðsfélögum sínum þakkir. Þetta voru mjög jákvæð viðbrögð hjá honum og sýna hversu mikill félagsmaður Steven er."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

