| Grétar Magnússon
Steven Gerrard hefur samþykkt tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Liverpool FC. Núgildandi samningur Steven Gerrard rennur út eftir tvö ár en þegar sá nýi tekur gildi mun hann verða samningsbundinn félaginu til a.m.k. 2013.
Rafa Benítez hefur lagt áherslu á það að fá lykilmenn félagsins til að skrifa undir nýja samninga og er Steven Gerrard sá fyrsti í röðinni. Fyrir ekki svo löngu síðan skrifuðu aðstoðarmenn og þjálfarar undir stjórn Benítez undir nýja samninga einnig.
Rafa Benítez sagði af þessu tilefni: ,,Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir félagið. Steven hefur enn og aftur sýnt félaginu hollustu sína og þetta var auðveldur samningur til að samþykkja. Um leið og við buðum honum samninginn sagði hann já. Það voru engin vandamál. Hann vill vera hér þangað til hann leggur skóna á hilluna."
,,Þetta sendir skýr skilaboð um að við séum á réttri leið sem félag. Að vita að við höfum leikmann eins og Steven Gerrard innan okkar raða um ókomin ár eru frábærar fréttir fyrir félagið og stuðningsmenn þess."
,,Hann er augljóslega leikmaður sem blæs öðrum leikmönnum baráttuanda í brjóst og jafnvel þó að hann sé að spila frábærlega um þessar mundir, þá held ég engu að síður að hans bestu ár í boltanum séu framundan."
TIL BAKA
Steven Gerrard hefur samþykkt nýjan samning
Steven Gerrard hefur samþykkt tveggja ára framlengingu á samningi sínum við Liverpool FC. Núgildandi samningur Steven Gerrard rennur út eftir tvö ár en þegar sá nýi tekur gildi mun hann verða samningsbundinn félaginu til a.m.k. 2013.Rafa Benítez hefur lagt áherslu á það að fá lykilmenn félagsins til að skrifa undir nýja samninga og er Steven Gerrard sá fyrsti í röðinni. Fyrir ekki svo löngu síðan skrifuðu aðstoðarmenn og þjálfarar undir stjórn Benítez undir nýja samninga einnig.
Rafa Benítez sagði af þessu tilefni: ,,Þetta eru stórkostlegar fréttir fyrir félagið. Steven hefur enn og aftur sýnt félaginu hollustu sína og þetta var auðveldur samningur til að samþykkja. Um leið og við buðum honum samninginn sagði hann já. Það voru engin vandamál. Hann vill vera hér þangað til hann leggur skóna á hilluna."
,,Þetta sendir skýr skilaboð um að við séum á réttri leið sem félag. Að vita að við höfum leikmann eins og Steven Gerrard innan okkar raða um ókomin ár eru frábærar fréttir fyrir félagið og stuðningsmenn þess."
,,Hann er augljóslega leikmaður sem blæs öðrum leikmönnum baráttuanda í brjóst og jafnvel þó að hann sé að spila frábærlega um þessar mundir, þá held ég engu að síður að hans bestu ár í boltanum séu framundan."
Nýlegar fréttir
-
| Grétar Magnússon
Origi leggur skóna á hilluna -
| Grétar Magnússon
Iraola tekur við stjórnartaumunum -
| Sf. Gutt
Liverpool Football Club á afmæli í dag! -
| Sf. Gutt
Munnlegt samkomulag frágengið! -
| Sf. Gutt
Af kvennaliðinu -
| Sf. Gutt
Ibrahima Konate heldur á braut! -
| Sf. Gutt
Andoni Iraola talinn líklegur arftaki Arne Slot! -
| Sf. Gutt
Arne Slot yfirgefur Liverpool! -
| Sf. Gutt
Í minningu -
| Sf. Gutt
Er Curtis Jones á förum?
Fréttageymslan

