| HI

Umboðsmaður Agger ræðir við AC Milan

Enskir fjölmiðlar greina frá því í dag að umboðsmaður Daniels Agger hafi rætt við forsvarsmenn AC Milan um hugsanleg kaup á Dananum. Samkvæmt ítölskum fjölmiðlum er Milan tilbúið að bjóða 8,5 milljónir punda í hann.

Viðræður hafa staðið yfir milli Liverpool og Agger um nýjan samning, en eitt og hálft ár er eftir af núgildandi samningi. Rafael Benítez hefur lýst því yfir opinberlega að hann vilji ekki missa Agger, enda er liðið í baráttunni á mörgum vígstöðvum. Agger hefur hins vegar sjálfur lýst yfir áhyggjum af því hve hægt þessar viðræður ganga.

Agger hefur átt erfitt með að festa sig í sessi í liðinu eftir að hann náði sér af meiðslum sem héldu honum frá keppni nánast allt síðasta tímabil. Enginn efast hins vegar um snilli hans og því verður að vona að niðurstaða náist sem feli í sér að Liverpool haldi kappanum.

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan