| HI

Benítez styður Gerrard

Rafael Benítez hringdi í Steven Gerrard í gær og hét honum fullum stuðningi vegna kærunnar sem hann á yfir höfði sér vegna líkamsárásar fyrir tveimur dögum. Þetta kemur til viðbótar við þá stuðningyfirlýsingu sem kom frá félaginu í gær. Þá mun enska knattspyrnusambandið ekki gera neitt í málinu nema að Gerrard verði dæmdur sekur.

Heimildarmaður innan Liverpool sagði við Daily Telegraph í dag að Gerrard hefði ekki brotið reglur félagsins með því að fara á veitingastaðinn eftir leikinn gegn Newcastle. Allir leikmenn hafi fengið tveggja daga frí og snúa til æfinga á ný í dag. Reiknað er með að hann muni halda sínu striki eins og venjulega.

Talsmaður enska knattspyrnusambandsins hefur jafnframt upplýst að málið sé ekki einu sinni til umræðu þar, enda eigi enska landsliðið ekki að spila neinn leik áður en Gerrard þarf að mæta fyrir rétt vegna málsins 23. janúar. Talsmaðurinn segir að ef leikmaður er sakfelldur fyrir alvarlegan glæp verði val hans í enska landsliðið til umræðu eftir því hverjar aðstæður verða. Engum leikmanni sé hins vegar meinað að spila með enska landsliðinu meðan þeir séu til rannsóknar hjá lögreglu."

TIL BAKA
Nýlegar fréttir
Fleiri fréttir
Fréttageymslan